Íslandsmerki, 1973 Árið 1969 var Sigurjóni falið að gera listaverk í tilefni 25 ára lýðveldis á Íslandi. Hann lauk verkinu, sem almennt er nefnt Íslandsmerki, árið 1973, en stytturnar voru ekki reistar fyrr en 1977 á Hagatorgi í Reykjavík. Fullt heiti verksins er: Minnismerki um stofnun lýðveldis á Íslandi 1944. Verkið er úr koparplötum, þyrping geometrískra súlna með stórum flötum en lífrænu yfirbragði og minna á forngrískar súlur. Um þetta leyti gerði Sigurjón fjölda súlulaga verka, en Íslandsmerki er stærst þeirra. Súlurnar hafa nánast mannlegt yfirbragð - hver og ein hefur sín eigin sérkenni. Þær standa í hnapp og mynda hóp, fjölskyldu eða samfélag, þar sem áhrifamáttur felst í því að vera hluti af sterkri heild. Danska skáldið Hans Mølbjerg lítur þessum augum á þetta verk:
|