Vordagskrá 2023



Í haust tók Lista­safn Sigur­jóns Ólafs­son­ar upp þá ný­breytni að standa fyrir reglu­leg­um menningar­við­burð­um − tón­leik­um, flutn­ingi hljóð­rita og kynn­ing­um á sögu­legu efni − í sal safns­ins á Laugar­nesi. Fest voru kaup á vönd­uð­um hljóm­flutnings­tækj­um og mynd­varpa í þeim til­gangi.
    Við­burð­irn­ir verða í anda sumar­tónleik­anna, á þriðju­dags­kvöld­um, um klukku­stund­ar langir, en hefj­ast klukk­an 20:00, og boð­ið er upp á kaffi í kaffi­stofu safns­ins á eftir þar sem rabba má við flytj­end­ur.
    Á liðnu hausti voru átta slíkir við­burð­ir á tíma­bil­inu frá 18. októ­ber til 22. nóv­ember.
Þriðjudaginn 14. febrúar kl. 20:00 „Hrosshár á strengi og holað innan tré“
Brot úr sögu klassísks fiðlu­leiks á Íslandi


Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og Povl Christian Balslev píanóleikari

Meðal annars verður fjallað um Þórarin Guðmunds­son (1896−1979) sem fyrstur Íslendinga hélt utan til að læra klass­ískan fiðlu­leik og að hafa fiðlu­leik og kennslu að aðal­starfi. Leikin verða lög frá hans tíð og eftir hann, sum hver á fiðlu sem hann lék á.
Þriðjudaginn 21. febrúar kl. 20:00

Klassík við Sundin
Fjárhirðar á flakki

Katrin Heymann flautuleikari og Össur Ingi Jónsson óbó­leikari.
Boð­ið er upp á ferða­lag um vítt svið tón­amála heims­ins.

Flutt verður verkið Fjár­hirð­ar Prov­ence eftir E. Bozza, ásamt dú­ett­um Ginastera, Mozarts, Yun og ein­leiks­flautu­són­ötu eftir C.P.E. Bach.
Þriðjudaginn 28. febrúar kl. 20:00
J.S. Bach
Einleikstónleikar

Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari

J.S. Bach
1685−1750
Sónata I í g moll, BWV 1001
adagio • fuga, • allegro • siciliana • presto
  Partíta I í h moll, BWV 1002
allemanda • double • corrente • double presto • sarabande • double • tempo di borea • double
Þriðjudaginn 7. mars kl. 20:00
J.S. Bach
Einleikstónleikar

Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari

J.S. Bach
1685−1750
Sónata II í a moll, BWV 1003
grave • fuga • andante • allegro
  Partíta II í d moll, BWV 1004
allemanda • corrente • sarabanda • giga • ciaccona
Þriðjudaginn 14. mars kl. 20:00

Klassík við Sundin

Ármann, Eva Þyri, Pamela og Sigurður
Morricone og Rota í nýju ljósi

Pamela De Sensi flauta, Ármann Helgason klarinett, Sigurður Halldórsson selló og Eva Þyri Hilmarsdóttir píanó

Bornir eru saman tveir risar ítalskrar tónlistar, Nina Rota og Ennio Morricone. Tónverk þau sem flutt verða fyrir flautu, klarinettu, selló og píanó bjóða upp á þau ýmsu litbrigði sem þeir voru þekktir fyrir. Verk þessi hafa sjaldan eða aldrei verið flutt á Íslandi. Þá verður frumflutt verkið „Melódía“ sem Steingrímur Þórhallsson samdi innblásinn af verkum Ítalanna.
Þriðjudaginn 21. mars kl. 20:00
J.S. Bach
Einleikstónleikar

Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari

J.S. Bach
1685−1750
Sónata III í C dúr, BWV 1005
adagio • fuga • largo • allegro assai
  Partíta III í E dúr, BWV 1006
preludio • loure • gavotte en rondeau • minuet I • minuet II − minuet I da capo • bourée • gigue
Þriðjudaginn 28. mars kl. 20:00
Hlíf og Nína Margrét
Þrjár af Mannheim sónötum Mozarts

Hlíf Sigurjónsdóttir fiðla og Nína Margrét Grímsdóttir píanó
W.A. Mozart
1756−1791
Sónata nr. 18 í G dúr K 301
Allegro con Spirito• Allegro
  Sónata nr. 21 í e moll K 304
Allegro • Tempo di Menuetto
  Sónata nr. 22 í A dúr K 305
Allegro di molto • Tema con variatione: Andante grazioso − Allegro
Þriðjudaginn 11. apríl kl. 20:00
Cole og Kristján
Svanasöngur Schuberts

Kristján Jóhannesson bassabaritón og Cole Knutson píanóleikari flytja Svana­söng eftir Franz Schub­ert.

    Svana­söngur D 957 er safn 14 söngva eftir Franz Schub­ert sem hann samdi árið 1828, skömmu áður en hann lést, við ljóð eftir Lud­wig Rell­stab og Hein­rich Heine.
    Kristján Jóhannes­son lærði hér heima og við Tón­listar­há­skól­ann í Vín, en starf­ar nú við Óper­una í St. Gallen í Sviss. Cole Knut­son er mjög fjöhæfur kana­dísk­ur píanó- og saxó­fónleikari sem nú stund­ar fram­halds­nám við Lied­zentr­um Lied­aka­dem­ie í Heidel­berg.
Þriðjudaginn 18. apríl kl. 20:00

Klassík við Sundin

Ástríður og Anna
Tónleikunum frestað til hausts vegna veikinda

Tímaferðalag um tónsmíðar Wagners

Anna Jónsdóttir sópran og Ástríður Alda Sigurðardóttir píanó
Þriðjudaginn 2. maí kl. 20:00
„..dalurinn hér kvað við af flautuspili smalanna sem kváðust á“

Svava Bernharðsdóttir víólu­leik­ari, Hlíf Sigurjónsdóttir fiðlu­leik­ari og Herdís Anna Jónsdóttir víólu­leik­ari fjalla um hið ein­staka tíma­bil þeg­ar tón­list hljóm­aði um alla Suður-Þing­eyjar­sýslu, söng­ur, flautu- og fiðlu­leik­ur. Vit­að er að til voru nokk­uð á ann­að hundr­að fiðl­ur í sýsl­unni og fjöldi manna kunni að leika á þær.
Þriðjudaginn 9. maí kl. 20:00
Þórdís, Martin og Hlíf
Þrjú strengjatríó

Hlíf Sigurjóns­dóttir fiðla, Martin Frewer víóla og Þór­dís Gerð­ur Jóns­dótt­ir selló

Ernst von Dohnányi
1877−1960
Serenade ópus 10
Marcia • Romanza • Scherzo • Tema con variazioni • Rondo − allegro vivace
Alexander Liebermann
f. 1989
Séð að himni ofan (2021)
W.A. Mozart
1756−1791
Divertimento í Es dúr, K 563
Allegro • Adagio • Menuetto, allegretto • Andante • Menuetto, allegretto • Allegro
Þriðjudaginn 16. maí kl. 20:00

Klassík við Sundin

Hafdís og Svanur
Tónlist fyrir flautu og gítar

Hafdís Vigfúsdóttir flauta og Svanur Vilbergsson gítar

Í þessari litríku efnis­skrá hefjast leikar á barokk­tím­an­um og teygja sig til sam­tíma­tóna Low­ell Lieber­mann, með við­komu í franskri ljóð­rænu og þýskri rómantík.