|
Charlotte Christensen
Andrúmsloft staðar
Á latínu er til hugtak sem kallast genius loci. Það heitir andrúmsloft staðar. Og grundvallast á þeirri sannfæringu að staður sé ekki aðeins landafræði, heldur geti hann tekið til sín, og verið lýsandi fyrir, mann eða konu. Eða þá einhvern heilagleika. Sú hugmynd er kjölfesta hugmyndarinnar um að viðhalda heimili einhvers, oftast nær listamanns, sem safni eða minningarmarki af einhverju tagi. Þetta fyrirbæri gæti verið aðgengileg bókmenntaáhugafólki, eins og búgarður Selmu Lagerlöf, Mårbacka, í Svíþjóð, eða listunnendum, sjá hús þeirra hjóna, önnu og Michaels Ancher í Skagen, nyrst í Danmörku.
Andrúmsloft staðar skynjar maður til að mynda í birtunni sem umlykur tiltekin hús, í kyrrðinni sem verður til þegar stórborgin fjarlægist, eða eins og gerist heima á slóðum Goethes í Weimar, þar sem híbýli skáldsins gnæfa yfir umhverfi sitt. Þegar myndlistarmaður á í hlut geta sérkenni staðarins legið í víðáttunni allt um kring, í nálægðinni við hafið eða tilfallandi dansi norðurljósanna yfir húsi hans, fyrirbæra sem einnig rata inn í verk listmálara eða myndhöggvara. Heimsæki maður svoleiðis vistarverur verður maður margs vísari um listamennina.
Laugarnestangi 1959 |
Í Reykjavík er að finna mörg hús þar sem rithöfundar eða myndlistarmenn hafa búið um sig og tekið til sín áhrif frá umhverfinu. Fallegast og áhrifamest þessara húsa er safn Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara í þungamiðju menningarlandslagsins á Laugarnesi, nánar tiltekið að Laugarnestanga 70. Þar settist myndhöggvarinn að árið 1945, eftir langa dvöl við nám og störf í Kaupmannahöfn. Staðurinn er býsna frábrugðinn því nútímalega umhverfi í höfuðborg Danmerkur, þar sem Sigurjón bjó og var á tímabili samstarfsmaður hins fastheldna starfsbróður síns, Einars Utzon-Frank (1888−1955). Á sama tíma sýndi hann með framúrstefnumönnum eins og fjölhaganum Asger Jorn.
Árið 1945 var Reykjavík óumræðilega ólík þeirri borg sem við þekkjum í dag, þar sem skýjakljúfar í millistærð rísa á hverjum reit til að koma til móts við brýnan húsnæðisvanda, en menningarlífið þá einkenndist af fjölbreytni og samfélag listamanna var öflugt.
Á grunni frumstæðs íbúarhúss og vinnustofu Sigurjóns voru seinna meir byggðar stærri vistarverur og eftir dauða hans árið 1982 tókst ekkju hans, Birgittu Spur, að afla tekna til að setja á stofn safn um listamanninn á sama stað. Þar má finna stórt samsafn verka hans og heimildasafn sem tengist því; það er einnig aðgengilegt á netinu. Til allrar hamingju hefur andi staðarins ekki farið forgörðum, sem gerir að verkum að í sérhverri heimsókn á Listasafn Sigurjóns Ólafssonar opnast fyrir áhorfandanum ný sýn, þar sem skúlpnáttúran og arkitektúr safnbyggingar tengjast með einstæðum hætti.
Í ár kallast höfuðsýning safnsins Augliti til auglitis. Portrett Sigurjóns Ólafssonar. Sýningin gefur einstakt yfirlit yfir portrettmyndir listamannsins, en slíkar myndir eru rauði þráðurinn í myndlist hans. Þær eru knúnar áfram af hvötum, þar sem fara saman ævilöng samkennd listamannsins með samborgurum sínum og heilbrigð sjálfsbjargarviðleitni, nauðsyn þess að verða sér úti um tekjur sem gæfu honum ráðrúm til að vinna að óhlutbundnari og öllu óaðgengilegri verkum.
Á sýningunni verður ljóst hvernig viðhorf Sigurjóns til fyrirsæta og sjálfs portrettsins breytast í tímans rás. Frá því snemma á fjórða áratugnum hafði Sigurjón unnið jöfnum höndum að hlutlægum verkum og óhlutlægum, þó svo hið fyrrnefnda sé að sjálfsögðu fyrirferðarmeira í portrettunum. Þó draga verkin á sýningunni fram töluverða tilbreytni í verkunum þar sem mannslíkaminn er útgangspunkturinn, eftir því hvar listamaðurinn var staddur listrænt séð og hvaða efnivið hann var með undir í portrettgerðinni. Hann dregur upp myndir af alls konar fólki, ungu og gömlu, og langtífrá öll verkin á sýningunni eru umbeðin. Nokkrar mannamyndir eru af verkafólki, og þar má sjá Sigurjón beina sjónum sínum að líkamlegum ummerkjum um erfiðisvinnu eða aflsmuni einstaklinga, eða, eins og gerist í Kroppinbaki, að hann beinir sjónum sínum að lífshlaupi einstaklings sem markað er af mótlæti og líkamlegum þjáningum.
Bæklingurinn sem fylgir sýningunni hefur að geyma upplýsandi viðtal frá 1980 sem aðstoðarmaður Sigurjóns, Erlingur Jónsson myndhöggvari, tók við hann. Þar má finna upplýsingar um þá myndhöggvara úti í Evrópu sem hann hafði áhuga á, viðhorf hans til efniviðarins og sjálfs vinnuferlisins, þegar portrett verður til fyrir framan fyrirsætuna.
Guðrún Gísladóttir móðir listamannsins |
Sýningin er ekki sett upp í tímaröð, heldur er einstök verk látin slá neista hvert af öðru. Til dæmis eru elstu og yngstu portrett stundum hlið við hlið, og oft er verkum úr gifsi stillt upp við hlið steinhöggs og málmskúlptúra. Í stærsta sýningarsalnum brjóta þrjár myndir af konum upp nær órofa uppstillingu af alvörugefnum körlum, þar sem aðeins stórbrotin gifsmyndin af Jóni Thordarson frá 1956, fær mann til að brosa.
Hanne Schultz |
Portrettin þrjú af konunum eru ólík innbyrðis. Á námsárum Sigurjóns við Konunglegu akademíuna í Kaupmannahöfn gerði hann myndina af móður sinni sem vakti verðskuldaða athygli þegar hún var sýnd. Fyrir þá mynd hlaut hann Eckersbergorðuna árið 1939, en það voru æðstu myndlistarverðlaun sem þá voru veitt í Danmörku. Myndina af móður sinni mun listamaðurinn hafa gert á einum degi árið 1938, þegar hann var heima á Íslandi og gamla konan dróst á að klæðast íslenskum þjóðbúningi fyrir hann. Frá Kaupmannahafnarárunum er þar einnig heillandi portrett af Hanne Schultz, dóttur hins þekkta listfræðings og Thorvaldsenssérfræðings, Sigurd Schultz. En það er ekki myndlist Thorvaldsens sem er það fyrsta sem kemur upp í hugann þegar við gaumgæfum þetta brennda leirportrett, heldur er í því meira en lítið bergmál frá forngrísku hofróðunum, korai, sem standa fjarrænar og sjálfs sín ráðandi á Akrópólishæðinni í Aþenu.
Svava Ágústsdóttir |
Þriðja konumyndin sem hér getur að líta sýnir þokkafulla heimskonu, Svövu Ágústsdóttur, sem í meðförum listamannsins breytist í egypska drottningu. Túlkun listamannsins á eðlisþáttum kvenna er því langt í frá einsleit, hvort sem litið er til stílískra þátta eða sálfræðinnar.
Kroppinbakur |
Andstæðurnar sem hér birtast, milli æruverðugra og nafnkunnra einstaklinga annars vegar og nafnlausra verkamanna frá Kaupmannahöfn, bera vott pólitískri meðvitund Sigurjóns, sem er snar þáttur af viðhorfi hans til samferðamanna sinna. Samúð hans með lítilmagnanum birtist einna greinilegast í myndinni af áðurnefndum Kroppinbak, þar sem uppsöfnun efnis í klæðum mannsins, þar sem hvert leirlagið á fætur öðru er notað til að byggja upp yfirborð jakkans, myndar mótvægi við slétta fletina á höfði og höndum hans. Við stöndum frammi fyrir lánlausum einstaklingi sem engu að síður fer fram á skilning og virðingu okkar, hvað myndhöggvarinn sýnir honum fúslega. En það var honum skammgóður vermir, því sagan segir að á endanum hafi hann fyrirfarið sér.
Forsetinn |
Í rými safnsins tekst einstaklega vel að gera skil öllum þeim stílbrögðum sem Sigurjón beithöggmyndum sínum. Þetta er sérstaklega áberandi í litlum sal á annarri hæð safnsins. Fyrir utan einn gluggann hafa tveir hrafnar (Óðins?) tekið sér stöðu og krunka hástöfum meðan ég skrifa þessi orð − þannig gerast hlutirnir á Laugarnestanganum. Þegar maður kemur efst upp í stigann verður fyrir manni brandari, Forsetinn, skúlptúr samsettur úr málmi og trjáviði, sem er kveðja til Vigdísar Finnbogadóttur frá árinu 1980 þegar hún var kosinn forseti lýðveldisins. Kosning hennar var stór atburður í kvennasögunni og hafði áhrif víða um heim. Hér er þess minnst á tilfyndinn hátt með vísan til Óðins. Heimild er fyrir að þegar frú Vigdís sá verkið á sýningu, benti hún á tengsl skúlptúrsins við hásæti Óðins, með orðunum: Situr í Hliðskjálf.
Snilligáfa Sigurjóns birtist ekki síst í portrettunum sem hann gerir af lærifeðrum sínum í höggmyndalistinni snemma á Kaupmannahafnarárunum, þeim
Utzon-Frank og
Johannes Bjerg,
þar sem sá síðarnefndi hefur til að bera myndugleika fimmtándu aldar herforingja á Ítalíu.
Martin Andersen Nexø |
Síðan er sorglegt til þess að hugsa að nú sé ekki lengur hægt að skoða frumlega og ögrandi mynd Sigurjóns af hinum róttæka rithöfundi Martin Andersen Nexø nema á ljósmynd, þar sem allar líkur eru á að hún hafi týnst.
Þessi mynd af gustmiklum rithöfundinum einkennist af dramatískri spennu sem leiðir hugann að einstakri höggmynd, sem myndhöggvarinn og listmálarinn Willumsen gerði af eldhuganum og rithöfundinum Viggo Hørup. Hana er að finna í Kongens Have í Kaupmannahöfn, ekki langt frá Nýhöfn þar sem Sigurjón var öllum hnútum kunnugur.
Knud Rasmussen |
Að undanskildum granítskúlptúrunum á Ráðhústorginu í Vejle,
( i og
ii )
fékk Sigurjón ekki tækifæri til að gera opinbert minnismerki meðan hann vann í Danmörku. Þó gerði hann drög að ágætu verki í minningu landkönnuðarins Knuds Rasmussen árið 1957. Á sýningunni er einmitt að finna framlag Sigurjóns til samkeppninnar um minnismerkið um heimskautafarann, hófstillt og hetjulegt verk, sem sýnir hann með bjargvættum sínum, sleðahundunum. Myndhöggvarinn hefði sannarlega átt að vinna fyrstu verðlaun og hljóta verkefnið!
Birgitta Spur |
Sennilega munu ekki margir sýningargestir bera kennsl á mynd númer 8, af Birgittu Spur. Þessu sérstæða hvíta bronshöfði sem stendur úti í horni í salnum á efri hæðinni ætti maður að gefa gaum. Ekki aðeins vegna þess að það er skondið tilbrigði um óhlutbundna skúlptúra þeirra Pablos Picasso og Mirós, heldur vegna þess að safnið sem hýsir þessa sýningu væri ekki til, ef fyrirsætan hefði ekki eytt ævinni í að varðveita ævistarf Sigurjóns Ólafssonar. Birgitta Spur giftist listamanninum árið 1956 og fæddi honum fjögur börn. Árið 1963 var ný vinnustofa reist á rústum vinnustofunnar sem hann hafði notað frá því hann sneri heim til Íslands. En þegar hann lést árið 1982, var sú bygging ekki í ástandi til að hýsa til frambúðar hið umfangsmikla safn af verkum hans og annarra, sem hann lét eftir sig á Laugarnesi. Knúin áfram af kærleik til staðarins og virðingu fyrir myndverkum maka síns tókst Birgittu Spur að afla fjár til stofnunar einkasafns með nafni hans, en það tók til starfa 1. desember 1984. Arkitekt nýbyggingarinnar er Ögmundur Skarphéðinsson. Allar götur síðan hefur Birgitta Spur verið óþreytandi í að gera safnið að verðugri umgjörð utan um list Sigurjóns Ólafssonar, og tryggja að verk hans fengju ekki einasta sinn réttmæta sess innan íslenskrar menningar, heldur kappkostaði hún einnig að árétta þýðingu þeirra í stærra samhengi evrópskrar menningar með útgáfu fræðirita og sýningarstarfsemi.
Charlotte Christensen
listfræðingur, rithöfundur og fyrrum safnstjóri.
Þýðing úr dönsku: Aðalsteinn Ingólfsson
Grein þessi birtist í Morgunblaðinu 10. október 2026 bls. 34
|
|
|