Þriðjudaginn 1. júlí kl. 20:30 |

Freyr, Hlíf, Martin, Þórdís og Sólveig |
Kvintett, sónatína og serenaða
Freyr Sigurjónsson flautuleikari, Hlíf
Sigurjónsdóttir
fiðluleikari, Martin Frewer víóluleikari,
Þórdís Gerður Jónsdóttir
sellóleikari og Sólveig Thoroddsen
hörpuleikari.
Flutt verða Quinteto Instrumental eftir Heitor Villa-Lobos, Sonatina en Trio
eftir Maurice Ravel og Sérénada ópus 30 eftir Albert Roussel.
|
Þriðjudaginn 8. júlí kl. 20:30 |

Diet, Guja og Heleen |
Í morgun sá ég stúlku
− um æskuástir og rómantík
Tríó Ljósa. Diet Tilanus fiðluleikari,
Guja Sandholt söngkona og Heleen Vegter
píanóleikari.
Íslensk þjóðlög í nýrri útsetningu
Helga R. Ingvarssonar, einnig írsk og skosk þjóðlög og
ljóðaflokkur Hildigunnar Rúnarsdóttur við
ljóð Þórs Sandholt.
|
Þriðjudaginn 15. júlí kl. 20:30 |

Konstantin Zvyagin |
Ferð með Konstantin Zvyagin um
Niflungahring Wagners
Konstantin Zvyagin
píanóleikari leikur Svítu í
8 myndum, sem eru hans eigin umritanir úr
Niflungahring Richard Wagners. Konstantin, sem er af
rússneskum uppruna en býr og starfar í Darmstadt
í Þýskalandi, hefur undanfarið helgað sig
tónlist Wagners. Heimsókn hans til Íslands og
þessir tónleikar eru í samstarfi við
Wagnerfélagið á Íslandi.
|
Þriðjudaginn 22. júlí kl. 20:30 |

Siu Chui og Sigríður Ósk |
Sjávargolan
Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzo-sópran og
Siu Chui Li píanóleikari flytja suðræna og
sumarlega dagskrá.
Efnisskráin er spunnin í
kringum tvö verk eftir Maurice Ravel en í ár eru 150 ár
frá fæðingu hans. Við ferðumst meðal annars í
gegnum franskar sveitir með karaktermiklum
alþýðusöngvum Ravels yfir til Spánar þar
sem við heyrum grípandi
þjóðlagasöngvaflokk Manuel de Falla og endum
ferðalagið á gondóla í Feneyjum með
söngvum Reynaldos Hahn.
|
Þriðjudaginn 29. júlí kl. 20:30 |

Ásta Soffía |
Bach, Boulanger og íslensk tónlist á
harmóníku
Ásta Soffía Þorgeirsdóttir
harmóníkuleikari.
Efnisskrá tónleikanna inniheldur í bland:
klassísk tónverk eftir Johann Sebastian Bach og Nadiu
Boulanger, nýjar tónsmíðar eftir Hauk
Tómasson og Ásbjörgu Jónsdóttur og
einnig útsetningar Ástu Soffíu á
íslenskum sálmum, þjóðlögum og
tangóum.
|
Þriðjudaginn 5. ágúst kl. 20:30 |

Hjörleifur og Ourania |
Hjörleifur Valsson fiðluleikari og Ourania Menelaou
píanó− og trommuleikari. Hjörleifur og Ourania léku saman í
fyrsta skipti í Reykjavík í sumartónleikaröð LSÓ fyrir
réttum 30 árum. Nú leika þau Sónötu fyrir fiðlu,
píanó og trommur eftir bandaríska framúrstefnutónskáldið
George Johann Carl Antheil, Fimm stykki fyrir fiðlu og píanó eftir
ítalann Ottorino Respighi og Sónötu fyrir fiðlu og píanó
eftir rússneska tónskáldið Alfred Schnittke.
|
Heimasíđa LSÓ |
|