Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 14.08.26
English below


Úkraínska söngkonan
Christina Daletska
ásamt
Hlíf Sigur­jóns­dótt­ur fiðlu­leik­ara og Helgu Bryn­dísi Magnús­dótt­ur píanó­leikara
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar næsta þriðjudagskvöld 25. ágúst 2026 klukkan 20.30


Hér gefur ein­stakt tæki­færi til að hlýða á söng hinn­ar þekktu og eftir­sóttu úkra­ínsku söng­konu Christ­ina Dal­etska sem hef­ur kom­ið fram og sung­ið í öll­um helstu tón­leika­söl­um Evrópu. Christ­ina hefur bar­ist mik­ið fyrir mann­rétt­ind­um og er til dæmis opin­ber sendi­herra Sviss hjá Amn­esti Inter­nat­ional. Á tón­leik­um þeirra Christ­ina, Hlíf­ar og Helgu Bryn­dís­ar verða með­al ann­ars flutt­ir þrír brúð­kaups­söngv­ar eft­ir úkra­ínska tón­skáld­ið Myro­slav Skor­yk og verk­ið Vocalise eft­ir Hjálm­ar Helga Ragnars­son.

Ralph Vaughan Williams
1872−1958
Along the Fields
    We’ll to the Woods no more
    The Half-Moon Westers low
    In the Morning
Fritz Kreisler
1875−1962
Liebesfreud
Liebesleid
Melody
Myroslav Skoryk
1938−2020
Þrír úkraínskir brúðkaups­söngvar
Rebecca Clarke
1886−1979
Three Irish Country Songs
   I know my Love
   I know where I’m goin’
   A Ballynure Ballad
Hjálmar Helgi Ragnarsson 1952−2026
Vocalise    (1998)

Christ­ina Daletska fædd­ist og ólst upp í Lviv í vest­ur Úkra­inu. Hún lærði fiðlu­leik hjá móð­ur sinni, Oksana Trunko, og tíu ára göm­ul kom hún fram sem ein­leik­ari við The Royal Col­lege of Music í Lond­on. Áður en hún náði átján ára aldri hafði hún leik­ið opin­ber­lega fiðlu­kons­erta eftir Beet­hoven, Mend­el­sohn og Tjaik­ovski. Söng­nám hóf hún í Sviss og 23 ára göm­ul, eftir tveggja ára nám, þreytti hún frum­raun sína á óperu­svið­inu í hlut­verki Ros­inu í Rak­ar­an­um í Sev­illa í Teatre Real í Madr­id. Síð­an þá hefur hún kom­ið fram í fjölda tón­leika­sala á borð við Phil­harmon­ie Ber­lin, Wien­er Konzert­haus, Muziek­ge­bouw and Con­cert­gebouw Amster­dam, Elbp­hilharmon­ie Ham­burg, Phil­harm­onie Luxem­burg, Staats­oper Stutt­gart, Barb­ican Lond­on, Phil­harmonie de Paris, Opera Com­ique, Théâtre des Champs-Élysées, Théâtre du Châtelet, Ruhr­triennale, Grand Théâtre de Luxembourg, Casa da Musica Porto, Fest­spiel­haus Baden-Baden, Konzert­haus Dort­mund og Teatro La Fenice. Meðal þeirra stjórn­enda sem hún hefur unn­ið með eru Emilio Pomarico, Fran­çois-Xavier Roth, Dan­iel Hard­ing, Ric­cardo Muti, Mirga Graž­inytė-Tyla og Heinz Hol­liger.
    Undan­farið hefur Christ­ina einn­ig lagt áherslu á nýja tón­list og hefur unn­ið ná­ið með Phil­ippe Man­oury sem hef­ur sam­ið fyrir hana fjölda verka. Rödd Christ­inar, sem spann­­ar full­ar þrjár átt­und­ir hef­ur verið lýst með orð­un­um „stór­kost­leg“, „ómót­stæði­­leg“ og „til­komu­mikil“.
    Christ­ina talar sjö tungu­mál og er mikil bar­áttu­kona fyr­ir mann­rétt­ind­um. Undan­­farin þrett­án ár hef­ur hún ver­ið opin­ber sendi­herra Sviss hjá Amn­esty Inter­nati­onal. Hún hef­ur stað­ið fyrir bar­áttu gegn matar­só­un í París, unn­ið í flótta­manna­búð­um í Serbíu og frá því að Rúss­land réðst á Úkra­ínu hef­ur hún unn­ið öll­um stund­um að mál­stað þeirra.

Hlíf Sigurjónsdóttir fæddist í Kaup­manna­höfn en ólst upp í Reykja­vík. Hún nam fiðlu­leik hjá Birni Ólafs­syni konsert­meist­ara við Tón­listar­skól­ann í Reykja­vík og fór síðar til fram­halds­náms við Há­skól­ana í Indiana og Toronto og Lista­skól­ann í Banff í Kletta­fjöll­um Kan­ada. Einn­ig nam hún hjá Gerald Beal fiðlu­leik­ara í New York borg. Á náms­árum sín­um kynnt­ist hún og vann með mörg­um merk­ustu tón­listar­mönn­um tuttug­ustu aldar­inn­ar, þar á meðal William Prim­rose, Zolt­an Szek­ely, Gy­örgy Sebök, Rucc­iero Ricci og Igor Oist­rach. Hlíf hefur haldið fjölda ein­leiks­tón­leika og leik­ið með sin­fóníu­hljóm­sveit­um og kammer­sveit­um víða um Evr­ópu, í Banda­ríkjun­um og Kanada.
    Haustið 2014 kom geisla­diskur­inn DIA­LOGUS út hjá MSR Classics í Banda­ríkj­un­um með ein­leiks­verk­um í hennar flutn­ingi, sem sam­in hafa verið sér­stak­lega fyrir hana. Maria Nockin, gagn­rýn­andi Fan­fare Maga­zine, til­nefndi þann disk „CD of the year 2015“. Síðar endur­útgaf sama útgáfu­fyrir­tæki tvö­fald­an geisla­disk, frá árinu 2008, þar sem hún lék allar són­ötur og part­ít­ur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir Jo­hann Sebast­ian Bach. Hafa báðir þessir diskar hlotið mikið lof gagn­rýn­enda.
    Hlíf er annt um ísl­enska menn­ingu og sögu klass­ískr­ar tón­list­ar á Ís­landi og sá til dæmis um út­gáfu geisla­­disks 2020 með fiðlu­leik Björns Ólafs­son­ar úr fór­um RÚV.

Helga Bryn­dís Magnús­dótt­ir lauk ein­leik­ara- og kenn­ara­prófi frá Tón­listar­skól­an­um í Reykja­vík árið 1987 þar sem aðal­kenn­ari henn­ar var Jón­as Ingi­mundar­son. Hún stund­aði síð­an fram­halds­nám við Kon­serva­torí­ið í Vínar­borg hjá Leon­id Brum­berg og við Sibel­iusar­akademí­una í Hels­inki, hjá Liisu Poh­jola og Tuiju Hakk­ila. Hún hef­ur leik­ið fjölda ein­leiks­tón­leika, með­al ann­ars í Saln­um í Kópa­vogi, á Lista­hátíð í Reykja­vík og víða um land. Einnig hef­ur hún leik­ið með Sin­fóníu­hljóm­sveit Ís­lands, Sin­fóníu­hljóm­sveit Norður­lands og Sin­fóníu­hljóm­sveit áhuga­manna, píanó­kon­serta eftir Maurice Ravel, Francis Poulenc, Jo­hann­es Brahms, George Gersh­win og Jo­hann Sebast­ian Bach.
    Helga Bryn­dís lék ein­leik í beinni sjón­varps­útsend­ingu á Norður­lönd­un­um í spurn­inga­þætt­in­um Kontra­punkti. Hún er með­lim­ur í Caput hópn­um og hef­ur leik­ið fjöl­marga tón­leika með fremstu söngv­ur­um og hljóð­færa­leik­ur­um lands­ins og hljóð­rit­að marga geisla­­diska í sam­starfi við þá. Árið 2017 gaf hún út geisla­disk­inn Robert Schumann Carnaval-Fantasie þar sem hún leikur 24 ein­leiks­verk Schu­manns.

 
Ucrainian soprano
Christina Daletska
with violinist Hlíf Sigurjóns­dóttir and pianist Helga Bryndís Magnúsdóttir in Sigurjón Ólafsson Museum
Tuesday night, August 25th 2026, at 8:30 pm.

Works by Vaug­han Will­iams, Fritz Kreisler, Reb­ecca Clarke, Myroslav Skoryk and Hjálm­ar Helgi Ragnars­son.

Christ­ina Daletska was born and raised in Lviv, west­ern Ukra­ine. She stud­ied the violin with her moth­er and, at the age of ten, per­form­ed as a solo­ist at the Royal Col­lege of Mus­ic in London. Be­fore turn­ing eight­een, she had per­form­ed violin con­cert­os by Beet­hoven, Mendels­sohn, and Tchai­kovsky. She beg­an her vocal stud­ies in Switzer­land and after two years of study­ing, she made her debut as a sing­er in the role of Ros­ina in The Barb­er of Seville at the Teatro Real in Madr­id. Since then, she has per­form­ed in numer­ous con­cert halls, in­clud­ing the Phil­harmonie Berlin, Wiener Konz­ert­haus, Muziek­ge­bouw and Con­cert­ge­bouw Am­ster­dam, Elb­phil­harmon­ie Ham­burg, Phil­harmonie Luxem­bourg, Staats­oper Stutt­gart, Barbi­can London, Phil­harmon­ie de Paris, Opéra Com­ique, Théâtre des Champs-Élysées, Théâtre du Châte­let, Ruhr­trienn­ale, Grand Thé­âtre de Luxem­bourg, Casa da Mús­ica Porto, Fest­spiel­haus Baden-Baden, Konzert­haus Dort­mund, and Teatro La Fenice. Con­duct­ors she has worked with in­clude Emilio Pomar­ico, Fran­çois-Xavier Roth, Daniel Hard­ing, Ric­cardo Muti, Mirga Graž­inytė-Tyla, and Heinz Holliger.
    For more than a dec­ade Christ­ina has ded­icat­ed a sub­stant­ial part of her career to new music, col­labor­at­ing part­icul­arly closely with Phil­ippe Man­oury, who has written a numb­er of pieces for her. Christ­ina's vocal range spans over 3 oct­aves, and her reper­toire ex­tends across five cent­ur­ies. Her voice has been de­scribed as „phen­omen­al“, „ir­resist­ible“ and „spect­acular“.
    Christina, who speaks seven lang­u­ages, is a hum­an rights act­iv­ist and has been an of­ficial am­bassa­dor for Amn­esty Inter­nat­ional Switz­er­land for 13 years. She has man­aged an anti food waste pro­ject in Paris, work­ed at re­fugee camps in Serbia and since the be­ginn­ing of the Russ­ian full-scale war against Ukra­ine, she has also been work­ing daily as a volunteer.

Hlíf Sigurjónsdóttir studied the viol­in with con­cert­mast­er Björn Ólafs­son at the Reykja­vík Col­lege of Music. She furth­er­ed her stud­ies at the Uni­versi­ties of Indi­ana and Tor­onto where her teach­ers were Franco Gulli and Lor­and Feny­ves, fol­low­ed by two wint­ers as a stip­end­iary at the Banff School of Fine Arts in Canada. Later she took priv­ate les­sons in New York from the renown­ed violin­ist and teacher Gerald Beal. Hlíf has work­ed with many of the lead­ing music­ians of the twent­ieth cent­ury, in­clud­ing Will­iam Prim­rose, Janos Stark­er, Rug­giero Ricci, Igor Oist­rach, Gy­örgy Seb­ok and the memb­ers of the Hungar­ian quart­et.
    Hlíf has given numer­ous con­certs both as a solo­ist and with vari­ous en­sembl­es and or­ches­tras. In 2014, MRS Classics releas­ed her disc DIA­LOGUS with works for solo viol­in, all of which were written for her. That disc has been highly ac­claim­ed, e.g. by Voix des Arts, and one of Fan­fare Maga­zine's critics, Maria Nockin, has named it as one of the best CDs of the year 2015. In 2015 MSR Clas­sics re-releas­ed the critic­ally ac­claim­ed 2-CD set of her play­ing the Sonat­as and Partit­as for solo violin by J.S. Bach, first re­leas­ed in 2008. Hlíf is very int­erest­ed in hist­or­ical re­cord­ings made by the Ice­land State Radio which led to radio prog­rams, re­leasing a CD and events fea­tur­ing the first gen­erat­ion of clas­sically train­ed mus­ic­ians in Ice­land.

Helga Bryndís Magnúsdóttir completed her soloist and teaching dipl­omas at the Reykjavík Col­lege of Mus­ic in 1987, study­ing with Jónas Ingi­mundar­son. She furth­er­ed her music stud­ies at the Vienna Con­serva­tory with Leonid Brum­berg and at the Sib­elius Aca­demy in Hels­inki with Liisa Pohjola and Tuija Hakkila. She has given numer­ous solo recit­als in venu­es such as Sal­ur­inn in Kópa­vog­ur and at the Reykja­vík Arts Festival as well as per­form­ing around Iceland. She has also play­ed piano con­certos by Maur­ice Ravel, Francis Poulenc, Jo­hann­es Brahms, George Gersh­win and Jo­hann Sebast­ian Bach with orch­estr­as, such as the Ice­land Sym­phony Or­chestra, the North Ice­land Sym­phony Or­chestra, and the Ama­teur Sym­phony Orchestra.
    Helga Bryn­dís perform­ed a solo piece dur­ing a live Nord­ic tele­vis­ion broad­cast of the quiz show Kontra­punkt­ur. She is a memb­er of the Caput En­semble and has per­form­ed num­er­ous con­certs with the country’s lead­ing sing­ers and in­strumental­ists, re­cord­ing many CDs in col­la­bor­ation with them. In 2017, she releas­ed the album Robert Schu­mann: Carn­aval - Fanta­sie, featur­ing her per­formanc­es of 24 solo works by Schumann.
Aðgangseyrir er 4.000 krónur og greitt er við inn­ganginn. Tek­ið er við öll­um helstu greiðslu­kortum.
Fram til 13. september er Lista­safn Sigur­jóns opið alla daga nema mánu­daga milli 13 og 17. Kaffi­stofa safns­ins er opin á sama tíma. Hér má nálgast lista yfir aðra við­burði safnsins.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar • Laugarnestanga 70 • 105 Reykjavík • LSO(at)LSO.is