Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar 28.08.26
English below


Kaliforníski píanóleikarinn og eðalvínasalinn
Stephen Metzler
í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
þriðjudagskvöldið 8. september 2026 klukkan 20.30


Stephan Metzler gat ekki gert upp á milli tveggja ástríðna sinna, tón­list­inni og góð­um veig­um og sinn­ir því hvoru tveggja. Aðal­starf hans er um­fjöll­un og sala á eðal­vín­um, en tón­list­inni sinnir hann með píanó­leik og fer þetta oft saman þar sem hann leikur sjálf­ur á píanó við vín­kynn­ing­ar. Á tón­leik­un­um í Lista­safni Sigur­jóns Ólafs­son­ar verð­ur þó ein­göngu boð­ið upp á tón­list. Þar mun Stephan leika þekkt ein­leiks­verk fyrir píanó eftir Fréderic Chopin, Ludwig van Beet­hoven, Isaac Albéniz og Franz Liszt.

Frédéric Chopin
1810−1849
Etyða ópus 25 númer 1 (Vindharpan)
Ludwig van Beethoven
1770−1827
Píanósónata 22 ópus 54
    I. In tempo d'un Menuetto
    II. Allegretto − Più Allegro
Frédéric Chopin
Etyða ópus 10 númer 12 (byltingar−)
Pólónesa ópus 53 (hetju−)
Isaac Albéniz
1860−1909
Leyenda úr Suite Española ópus 47
(Upprunalega Prélude úr Chants d’Espagne ópus 232)
Franz Liszt
1811−1886
Goðsögn númer 2.
    Heilagur Françis af Paola gengur á vatninu
Isaac Albéniz
Castilla
    Seguidillas úr Suite Española, ópus 47

Stephen Metzler ólst upp á litl­um bú­garði í Kali­forn­íu þar sem rækt­að­ar voru val­hnet­ur og var hann af fjórðu kyn­slóð bú­enda þar. Píanó­nám hóf hann ung­ur, enda var tón­list í fjöl­skyld­unni, og saut­ján ára lék hann fyrsta píanó­kon­sert Tsjaj­kovskí með hljóm­sveit Há­skól­ans í Kali­forníu í Davis. Hann fékk styrk til náms við tón­listar­deild Há­skól­ans í Wash­ington og var þar undir leið­sögn ung­verska píanó­leik­ar­ans Béla Siki. Í fram­haldi af því lék hann á tón­leik­um með há­skóla­hljóm­sveit­inni, Belle­vue Phil­harmonic-hljóm­sveitinni og Seattle Symphony.
    Sam­hliða tón­list­inni hafði Stephen brenn­andi áhuga á evr­ópsk­um vín­um og um tíma stóð hann frammi fyrir þeirri ákvörð­un hvort hann ætti að leggja fyrir sig tón­list­ina eða að versla með eðal­vín frá Evr­ópu. Á með­an hann íhugaði það sótti hann vetrar­nám­skeið Banff-lista­mið­stöðv­ar­inn­ar í kletta­fjöll­um Kan­ada þar sem hann kynnt­ist ís­lenska fiðlu­leik­ar­an­um Hlíf Sigur­jóns­dóttur.
    En vínið varð ofaná og hann hefur meðal annars átt við­skipta­vini á Ís­landi, en píanó­ið var aldrei langt und­an. Er hann sér­hæfði sig í spænsk­um vín­um bætti hann til dæm­is spænsk­um tón­verk­um við efnis­skrá sína og féll það vel að kynn­ingu hans á þeim vín­um. Steph­en var val­inn til að leika fyrir Felipe, þáverandi krón­prins, en nú­ver­andi kon­ung Spán­ar, í tilefni af opin­berri heim­sókn hans til Washington-ríkis.

 
Californian pianist and wine connoisseur
Stephen Metzler
in Sigurjón Ólafsson Museum
Tuesday night, September 8th 2026, at 8:30 pm.

Stephen Metzler was rais­ed on a small family farm in central Cali­fornia, the fourth gen­erat­ion of walnut grow­ers. With mus­ical grand­parents, he stud­ied piano from an early age. At 17, Metzler per­form­ed Tchai­kovsky PIano Concerto No 1 with the Uni­ver­sity of Cali­forn­ia at Davis Or­ches­tra. At the Uni­versity of Wash­ington School of Music he stud­ied as a scholar­ship recip­ient under Hung­ar­ian pian­ist Béla Siki, lead­ing to per­formanc­es with the Uni­ver­sity Or­che­stra, the Bel­levue Phil­harmon­ic and the Seattle Symphony.
    Stephen de­velop­ed a paral­lel pas­sion for Europ­ean wines that re­sult­ed in a career cross­roads. In the pro­cess of mak­ing a final choice he at­tend­ed the Winter Cycle at the Banff Centre for the Arts, where he met young Ice­landic violin­ist Hlíf Sigurjónsdóttir.
    De­spite a long career in wine − in­clud­ing clients in Ice­land − the piano was never too far away. A specialty in Spain led to the addition of Span­ish key­board reper­toire, which fit well with the wine pro­mot­ions. On one oc­casion, Stephen per­formed for Prince − now King − Felipe of Spain in honor of his off­icial visit to the State of Washington.
Aðgangseyrir er 4.000 krónur og greitt er við inn­ganginn. Tek­ið er við öll­um helstu greiðslu­kortum.
Fram til 13. september er Lista­safn Sigur­jóns opið alla daga nema mánu­daga milli 13 og 17. Kaffi­stofa safns­ins er opin á sama tíma. Hér má nálgast lista yfir aðra við­burði safnsins
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar • Laugarnestanga 70 • 105 Reykjavík • LSO(at)LSO.is