Árið 2017 fékk Birgitta senda ljósmynd frá stjórnendum íþróttafélagsins Vals. Ljósmyndin var (meðal annars) af veggmynd úr koparvír sem þeir sögðu Sigurjón hafa gert fyrir félagið, enda ber hún öll merki þess að svo sé. Veggmyndina sögðu þeir glataða, og báðu leyfis um að endurgera hana eftir ljósmyndinni. Birgitta vissi ekki af þessari lágmynd en það rifjaðist upp fyrir henni að þegar Sigurjón var að vinna að Búnaðarbankamyndunum (LSÓ 1097) árið 1948 fékk hann lithimnubólgu og vann, að eigin sögn, myndina hálfblindaður af því. Sigurjón leitaði til Úlfars Þórðarsonar augnlæknis sem var mikill Vals-unnandi og formaður þess íþróttafélags, og fékk lækningu á meinum sínum. Birgitta telur að Úlfar hafi fengið Sigurjón til að gera þessa veggmynd, enda er hún unnin úr sama efni og á sama hátt og Búnaðarbankamyndirnar. Hún gaf leyfi fyrir að Helgi Gíslason endurgerði myndina, sem hann gerði (LSÓ 1380). |