Birgitta Spur
Birgitta Spur
(c) ljósm/photo GVA
Birgitta Spur er fædd árið 1931 á Fjóni og nam höggmyndalist hjá Luckow-Nielsen 1950 - 52 og við höggmyndadeild Konunglegu Listakademíunnar í Kaupmannahöfn 1952 - 54.

Hún flutti til Íslands með eiginmanni sínum Sigurjóni Ólafssyni myndhöggvara árið 1956. Tveimur áratugum síðar hóf hún nám í dönsku og íslensku við Háskóla Íslands og lauk BA prófi árið 1980. Hún kenndi við framhaldsskóla og stundaði einnig nám í listasögu við Háskóla Íslands og Kaupmannahafnarháskóla til ársins 1985 að hún einbeitti sér að uppbyggingu Listasasfns Sigurjóns Ólafssonar og hefur hún veitt því forstöðu frá upphafi.

Birgitta hefur staðið fyrir listsýningum bæði innanlands og utan og ritstýrt á öðrum tug rita á vegum safnsins. Birgitta er höfundur og ritstjóri heildarskrár verka Sigurjóns Ólafssonar.