Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar.   Smellið hér til að skoða í vafra

Síð­ustu tón­leik­ar af þrenn­um með öll­um són­öt­um og part­ít­um fyrir ein­leiks­fiðlu eft­ir J.S. Bach í flutn­ingi Hlíf­ar Sigur­jóns­dótt­ur verða í Lista­safni Sigur­jóns Ólafs­son­ar þriðju­dags­kvöld­ið næsta, 21. mars.

Part­ítur og són­öt­ur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir J.S. Bach, alls sex mikil­feng­leg verk í samtals 32 köflum, eru frá ár­inu 1720 og eru með­al horn­steina klass­ískra fiðlu­bókmennta. Hlíf hefur leikið þau víða, hér­lendis og beggja vegna Atlants­hafs­ins og árið 2008 gaf hún út tvö­fald­an geisla­disk með þeim öllum í flutn­ingi henn­ar, fyrstra Íslend­inga. Þeir diskar voru endur­útgefn­ir af banda­rísku út­gáf­unni MSR-Classics árið 2015. Hafa tón­leikarn­ir og disk­arn­ir hlot­ið afar lofsam­lega dóma.
    Fjögur verk­anna eru sam­in í moll tón­teg­und, en tvö þeirra eru í bjart­ari tón­teg­und, dúr, og þau leik­ur Hlíf á tón­leik­un­um næsta þriðju­dags­kvöld, 21. mars. Eru það Són­ata III í C dúr BWV 1005 og Part­íta III í E dúr BWV 1006.

„Einleiksverk þessi hafa fylgt mér allar götur frá námsárum mínum hjá Birni heitnum Ólafs­syni kon­sert­meistara, en ég var svo lán­söm að stunda nám hjá þessum frá­bæra tón­listar­manni. Björn áleit sónötur og partítur Bachs biblíu fiðlu­leikarans og mér eru þessi verk mjög hugstæð.“     H.S.
úr dómum um Bach tónleikana í NY 2010
„The concert was absolutely magnificent and exceeded all my expectations. ... I would recommend her concerts to anyone interested in hearing one of the most promising, young violinists of our time.“
Gerald M. Goldhaber, Ph.D. President and CEO, N.Y.

úr dómum um Bach tónleikana í NY 2011
„Hlif Sigurjonsdottir has fantastic tone and interpretive insight, simultaneously vigorous and lacey delicate. Bach is Bach, and the incredibly rare performer – a few in each generation – who play like her seem a heavenly revelation. Bach's canonic writing is glorious.“
Mark Greenfest tónlistargagnrýnandi í NY, sem ritar dóma m.a. fyrir NMC Newsletter

úr dómum um geisladiska hennar með einleiksverkum Bachs:
„Sigurjónsdóttir's phrasing is crystalline clear. (In different close hearings a couple of months apart I found myself writing down this same phrase.) Her music breathes and details are masterfully shaded. Her tempos are not rigid and her timings, of individual movements, are both slower and faster than other players.“
R. James Tobin Classical Net 2010.     dómurinn í heild

„The Mount Everest of these Himalayas, the great Ciaccona (Chaconne) in Partita No. 2, receives particular care from Sigurjónsdóttir as she explores all the great features in this long (15:48) work in ways that make it continually engaging for the listener. Her pacing here is absolutely perfect as she forms what is initially a rather square-toed conception into a thing of exquisite beauty. Without sacrificing any of its fluidity, she employs discrete variations in tempo, as in the passages of increasing urgency that set the stage for the wonderful moment of relaxation that steals upon us at just about the midpoint of the Chaconne. You don’t have to be terribly learned musically to realize that something wonderful has transpired in Bach’s monumental set of variations on a ground bass. Sigurjónsdóttir does the hard work for you, so just sit back and enjoy!“
Phil Muse, Audio Club of Atlanta 2016  dómurinn í heild
Þessa dóma og aðra má lesa á heimasíðu Hlífar.


Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaup­manna­höfn en ólst upp í Reykja­vík. Hún nam fiðlu­leik hjá Birni Ólafs­syni kon­sert­meistara við Tón­listar­skól­ann í Reykja­vík og fór síðar til fram­halds­náms við Há­skól­ana í Indiana og Toronto og Lista­skól­ann í Banff. Einnig nam hún hjá Gerald Beal fiðlu­leik­ara í New York borg. Á náms­árum sín­um kynnt­ist hún og vann með mörg­um merk­ustu tón­listar­mönn­um tutt­ug­ustu ald­ar­inn­ar, þar á meðal Will­iam Prim­rose, Zoltan Szekely, György Seb­ök, Rucciero Ricci og Igor Oistr­ach.

    Hlíf hefur haldið fjölda ein­leiks­tón­leika og leikið með sin­fón­íu­hljóm­sveit­um og kammer­sveit­um víða um Evr­ópu, í Banda­ríkj­un­um og Kanada. Haustið 2014 kom geisla­disk­ur­inn DIALOGUS út hjá MSR Classics í Banda­ríkj­un­um með ein­leiks­verk­um í hennar flutn­ingi, sem sam­in hafa verið sér­stak­lega fyrir hana. Maria Nockin, tón­listar­gagn­rýn­andi Fanfare Magazine, til­nefndi þann disk „CD of the year 2015“. Haust­ið 2015 endur­út­gaf sama út­gáfu­fyrir­tæki tvö­fald­an geisla­disk, frá ár­inu 2008, þar sem hún lék allar són­ötur og part­ítur fyrir ein­leiks­fiðlu eftir Johann Sebast­ian Bach. Hafa báðir þess­ir diskar hlot­ið mikið lof gagn­rýn­enda.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar • Laugarnestanga 70 • 105 Reykjavík • sími 553−2906 • LSO(at)LSO.is
Hlíf Sigur­jóns­dótt­ir • HlifSigurjons(at)HlifSigurjons.is