23. janúar 2024. Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar   −   Sækja sem texta
Þura
Tónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
laugardaginn 3. febrúar og sunnudaginn 4. febrúar

Þura og valin­kunn­ir gest­ir henn­ar bjóða upp á nota­lega tón­list sem spann­ar yfir hundr­að ár í sögu tón­listar­inn­ar, allt frá Ed­ward Elg­ar til Braga Valdi­mars. Kunnug­leg tón­list og ís­lensk­ir text­ar eru í fyrir­rúmi, létt stemn­ing, sam­söngur, sög­ur, hlátur og grátur. Alger veisla!

Þar syngja Þura − Þur­íð­ur Sigurðar­dóttir, Berg­lind Björk Jónas­dóttir og Sig­urð­ur Helgi Pálma­son við undir­leik Láru Bryn­dís­ar Eggerts­dótt­ur píanó­leik­ara, Hlíf­ar Sigur­jóns­dótt­ur fiðlu­leik­ara, Bjarna Svein­björns­son­ar kontra­bassa­leik­ara og Péturs Grétars­son­ar slag­verks­leikara.

For­sala að­gangs er í Lista­safni Sigur­jóns Ólafs­son­ar á safna­nótt, 2. febrú­ar milli 18 og 23. Einn­ig á með­an safn­ið er op­ið á laugar­dag 3. og sunnu­dag 4. kl. 13 − 17. Að­gangs­eyr­ir er 4000 krón­ur. Húsið er opn­aš 19:15 og tón­leik­arn­ir hefjast klukk­an 20:00.

Heima og heiman nefn­ist sýn­ing á mál­verk­um Þuru í efri sal safns­ins og er op­in á safna­nótt, 2. febrú­ar milli 18 og 23, og svo á laugar­dög­um og sunnu­dög­um milli klukk­an 13 og 17 fram á vor. Þura verður með leið­sögn um sýning­una klukkan 20:30 á safna­nótt. Ekki er mögu­legt að hafa sýn­ing­una opna tón­leika­kvöldin.
Lista­safn Sigur­jóns Ólafs­son­ar opn­ar aft­ur á safna­nótt 2. febrú­ar, eftir miðsvetrarlokun,
og er opið laugar­daga og sunnu­daga milli 13 og 17 fram til 12. maí að undan­tek­inni páska­helginni.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar • Laugarnestanga 70 • 105 Reykjavík • sími 553−2906 • LSO(at)LSO.is
www.LSO.is