Meginþættir í starfsemi LSÓ:
- að varðveita og halda við listaverkum Sigurjóns Ólafssonar og öðrum eigum safnsins.
- að kynna list Sigurjóns Ólafssonar hérlendis sem erlendis með sýningum, skólakynningum og útgáfustarfsemi.
- að rannsaka list Sigurjóns Ólafssonar og tengja hana liststraumum samtímans.
- að gefa út, og halda við heildarskrá listaverka Sigurjóns Ólafssonar (Catalogue raisonné).
- að tengja starfið í listasafninu öðrum listgreinum eftir því sem við verður komið.
- að stuðla að verndun náttúrulegu umhverfi safnsins og búsetulandslagi á Laugarnesi.
Forstöðumaður í fullu starfi sér
um allan almennan rekstur ásamt starfsmanni sem m.a. sér um húsvörslu
og bókhald. Á sumrin er fengið gæslufólk í
tímavinnu. Í maí eða júní ár hvert
er haldinn sameiginlegur fundur með stjórn safnsins og fulltrúaráði
og heitir hann aðalfundur sjálfseignarstofnunarinnar.
Meginviðfangsefni aðalfundar er:
Síðasti aðalfundur safnsins var haldinn 7.
júní 2011.
Nú sitja í stjórn safnsins: Birgitta Spur forstöðumaður,
Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari, Æsa Sigurjónsdóttir
listfræðingur, Guðrún Agnarsdóttir læknir og
Vikar Pétursson verkfræðingur. Karólína Eiríksdóttir
og Geirfinnur Jónsson eru varamenn.
Fulltrúaráð LSÓ skipa: Sigmundur Guðbjarnason formaður,
Pétur Guðmundsson varaformaður, Anna Einarsdóttir, Ágúst
Einarsson, Björg Þorsteinsdóttir, Gísli Sigurðsson,
Guðrún Agnarsdóttir, Guðrún Pétursdóttir,
Karólína Eiríksdóttir, Kolbrún Halldórsdóttir,
Vikar Pétursson og Vilhjálmur H. Vilhjálmsson. Árni
Snæbjörnsson, löggiltur endurskoðandi hjá Ernst
& Yong endurskoðar reikninga safnins.
Hér má nálgast Ársskýrslur Listasafnsins á pdf formi:
haust 1988 - 1990
Er að leita að 1991-1993 á tölvutæku formi.
1993 - maí 1994
maí 1994 - maí 1995
maí 1995 - maí 1996
maí 1996 - maí 1997
maí 1997 - maí 1998
maí 1998 - maí 1999
maí 1999 - maí 2000
maí 2000 - maí 2001
maí 2001 - maí 2002
maí 2002 - maí 2003
maí 2003 - maí 2004
maí 2004 - maí 2005
maí 2005 - maí 2006
maí 2006 - maí 2007
júní 2007 - júní 2008
júní 2008 - maí 2009
júní 2009 - júní 2010
júní 2010 - maí 2011
Hér má nálgast
skipulagsskrá safnins (pdf)
Hér má nálgast
grunnteikningu af neðri hæð safnsins (pdf)
Hér má nálgast
grunnteikningu af efri hæð safnsins (pdf)
Hér má nálgast
tæknilegar upplýsingar um safnið á ensku (pdf)
..