Fréttatilkynning frá Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
(English below)

Ábyrgðarmaður:
Geirfinnur Jónsson
Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Sími 553 2906 netfang:LSO@LSO.IS

Tónleikasíða safnins  (ísl) (ens) er uppfærð vikulega og t.d. eru settar krækjur í efnisskrár tónleikanna þegar þær eru tilbúnar.

Sumar­tónleika­bæklingur 2015
Listasafn Sigurjóns
þriðjudagskvöld 14. júlí 2015 kl. 20:30

Miðasala við inn­gang­inn
Aðgangseyrirr kr. 2000
Tekið er við greiðslukortum

Hvar er safnið?

Carl og Hlíf
Smellið á smámyndina til að fá prenthæfa ljósmynd.

Hér má ná í pdf útgáfu af efnisskrá tónleikanna.

Nánari upplýsingar um tónleikana veitir:
Hlíf Sigurjónsdóttir í síma 863 6805.

Tveggja alda gamall seiður

Á öðrum tónleikum í sumar­tónleika­röð Listasafns Sigurjóns leika Hlíf Sigurjónsdóttir fiðluleikari og kanadíski píanóleikarinn Carl Philippe Gionet þrjár sónötur eftir Franz Schubert. Sónötur þessar, sem í upphaflegri útgáfu voru nefndar sónatínur, samdi Schubert í mars og apríl 1816, og voru þetta fyrstu tónverk sem hann samdi fyrir þessa hljóðfæra­skipan.

Sónata í D dúr D384
Sónata í a moll D385
Sónata í g moll D408


Tónleikarnir hefjast að vanda klukkan 20:30 og standa í um það bil eina klukkustund.
Hlíf Sigurjónsdóttir er fædd í Kaupmannahöfn en ólst upp í Reykjavík. Hún nam fiðluleik hjá Birni Ólafssyni konsertmeistara við Tónlistarskólann í Reykjavík og fór síðar til framhaldsnáms við Háskólana í Indiana og Toronto og í Listaskólann í Banff í Kanada. Einnig nam hún hjá Gerald Beal fiðluleikara í New York borg. Á námsárum sínum kynntist hún og vann með mörgum merkustu tónlistarmönnum tuttugustu aldarinnar, þar á meðal William Primrose, Zoltan Szekely, György Sebök, Rucciero Ricci og Igor Oistrach.
    Hlíf hefur haldið fjölda einleikstónleika og leikið með sinfóníuhljómsveitum og kammersveitum víða um Evrópu, í Bandaríkjunum og Kanada. Árið 2008 kom út tvöfaldur geisladiskur með leik hennar á öllum sónötum og partítum fyrir einleiksfiðlu eftir Johann Sebastian Bach og á liðnu ári kom út geisladiskurinn DIALOGUS með tónverkum fyrir einleiksfiðlu sem samin hafa verið sérstaklega fyrir hana. Hefur sá diskur hlotið mikið lof gagnrýnenda.

Carl Philippe Gionet píanóleikari er með doktorsgráðu í píanóleik frá Université de Montréal þar sem Paul Stewart, hinn kunni píanisti frá Nova Scotia, var aðalkennari hans. Hann hefur fengið tilsögn í meðleik hjá Roger Vignoles, David Lutz, Carolyn Hague og Susan Manoff og sótt námskeið í Académie de Villecroze hjá Dalton Baldwin, Heidelberg Lied Akademie með Thomas Hampson, the Crear Scholars með Malcolm Martineau, Schubert Stichting í Amsterdam og hjá Franz-Schubert-Institut. Auk þess hefur hann spilað á námskeiðum hjá Martin Isepp, Elly Ameling, Rinaldo Alessandrini, Wolfram Rieger, Julius Drake, Rudolf Jansen og Ivry Gitlis.
    Carl hefur hlotið margar styrki, þar á meðal frá Sylva Gelber Music Foundation, frá Canada Council for the Arts, Foundation des Jeunesses Musicales du Canada, the New Brunswick Arts Council, Université de Moncton og Université de Montréal. Hann hefur komið fram á tónleikum í Norður Ameríku, Evrópu og Mið-Austurlöndum.

Sigurjón Ólafsson Museum

Tuesday evening,
July 7, 2015 at 8:30 pm

Admission ISK 2000 - at the entrance. Credit cards accepted

Where is the Museum?

Carl and Hlíf
A PDF version of the program

Further informations gives:

Hlíf Sigurjónsdóttir, tel 863 6805.

Enchantment for two centuries
Hlíf Sigurjónsdóttir and the Canadian pianist Carl Philippe Gionet, perform the three sonatas by Franz Schubert, op. posth. 137, next Tuesday in Sigurjón Ólafsson Museum. These sonatas were written in March and April 1816 and when first published they were named Sonatinas.

Sonata in D major D384
Sonata in a minor D385
Sonata in g minor D408

These concerts, taking place Tuesday evenings during the summer, have become a tradition in the cultural life of Reykjavík. The main hall of the Museum seats 90 people and its warm acoustics are ideal for solos, duos and smaller chamber groups. All informations on the concerts are available at www.LSO.is/index_e.htm in English as well as Icelandic.
Hlíf Sigurjónsdóttir was born in Denmark and grew up in Iceland. Upon graduation from the Reykjavík College of Music, she furthered her violin studies at the Universities of Indiana and Toronto where her teachers were Franco Gulli and Lorand Fenyves, and the Banff School of Fine Arts. Later she took private lessons in New York from the renowned violinist and teacher Gerald Beal. She has been fortunate to work with many of the leading musicians of the twentieth century, including William Primrose, Janos Starker, Rucciero Ricci, Igor Oistrach, György Sebök and the members of the Hungarian quartet.
    Hlíf has given numerous concerts both as a soloist and with various ensembles and orchestras. A critically acclaimed 2-CD set of her playing the Sonatas and Partitas for solo violin by J.S. Bach was released in 2008. Her most recent disk, DIALOGUS, with solo violin works, all of which were written for her, has also been highly praised, e.g. by Voix des Arts and Gapplegate Classical-Modern Music Review.

Whether as a soloist or an accompanist, the Canadian pianist Carl Philippe Gionet is a much sought after pianist and works with numerous performers in North America, Europe and the Middle East. He received his training in piano accompaniment with Roger Vignoles, David Lutz, Carolyn Hague and Susan Manoff, and has participated in the Académie de Villecroze with Dalton Baldwin, the Heidelberg Lied Akademie with Thomas Hampson, the Crear Scholars with Malcolm Martineau, the Schubert Stichting in Amsterdam and the Franz-Schubert-Institut. He also played in master classes of, among others, Martin Isepp, Elly Ameling, Rinaldo Alessandrini, Wolfram Rieger, Julius Drake, Rudolf Jansen and Ivry Gitlis. Carl is an award recipient of the prestigious Sylva Gelber Music Foundation and of numerous scholarships and grants.
    Carl Philippe Gionet received his Doctorate in Piano Performance at the Université de Montréal under the direction of the renowned Nova Scotian pianist, Paul Stewart.


fréttatilkynningu lokið / end of release