![]() ![]() |
Billedhuggeren Sigurjón Ólafsson og hans
portrætter Verð 2.500 kr. |
![]() ![]() |
Sigurjón Ólafsson myndhöggvari
Íslenskur, enskur og danskur undirtexti. Verð 2.000 kr. |
![]() ![]() |
Sigurjón og Þorvaldur - tveir módernistar Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og Listasafn Háskóla Íslands, Reykjavík 2008 Ritstjórar: Birgitta Spur og Auður A. Ólafsdóttir Á íslensku, 48 síður, 21x20.5 cm, myndskreytt ISBN 978-9979-9548-5-9 Hönnun: Halldór Þorsteinsson Prentun: Prentsmiðjan Oddi. Sýningarskrá með samnefndri sýningu í Hafnarborg, menningar og listastofnun Hafnarfjarðar sem haldin er í tilefni þess að öld er liðin frá fæðingu Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara og Þorvalds Skúlasonar listmálara. Sýningin stendur frá 4. október til 9. nóvember 2008. Inngangur eftir Birgittu Spur og greinar eftir listfræðingana Auði A. Ólafsdóttur og Gunnar J. Árnason heimspeking. Verð 1000 kr. |
![]() ![]() |
Hjól - Plógur - Vængir
Sýningarskrá með samnefndri sýningu á verkum Hallsteins Sigurðssonar í Listasafni Sigurjóns 16. september - nóvemberloka 2006. 10 ljósmyndir "Hallsteinn og hrynjandinn í rýminu" eftir Jón Proppé Verð 500 kr. |
|
Hraunblóm - Lavaens blå blomst Ritstjóri: Birgitta Spur Sýningarskrá með samnefndri sýningu á verkum Carl-Henning Pedersen og Else Alfelt ásamt verkum Svavars Guðnasonar og Sigurjóns Ólafssonar í Listasafni Sigurjóns 17.09.05-27.11.05; Akureyri 21.01.06-17.03.06; Herning á Jótlandi 07.04.06-14.05.20 og Kaupmannahöfn okt-des 06. Greinar eftir Aðalstein Ingólfsson, Æsu Sigurjónsdóttur og Hanne Lundgren. Fjallað er um áður óþekktan kafla dansk-íslenskrar listasögu, áhrif dönsku Haustsýningarinnar í Reykjavík vorið 1948 og heimsókn málaranna Else Alfelt og Carl-Henning Pedersen það sumar. Bent er á að á sama tíma og félagar úr haustsýningunni stofnuðu Cobra ásamt listamönnum frá Brussel og Amsterdam voru listamenn að fást við svipaða hluti hér á Íslandi. Verð 1500 kr. |
![]() |
Isle Hessner Sýningarstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 2004 Skrá með farandsýningu á verkum Isle Hessner í LSÓ, 10.09.04-28.11.04, Johannes Larsen Museet í Kerteminde, Danmörku, 18.03.05-16.05.05, Þjóðminjasafninu í Nuuk, Grænlandi 27.06.05-14.08.05. Grein um listakonuna eftir Bodil Kaalund og þankar eftir aðra. Verð 800 krónur
|
|
|
![]() |
KONAN - Maddama, kerling, fröken, frú ... Hljóðbók Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 2002 Guðrún Eva Mínervudóttir: Kona 1950; Fríða Á. Sigurðardóttir Ekkjan; Þórunn Valdimarsdóttir Pallas Aþena; Kristín Ómarsdóttir Fjallkonan; Vilborg Dagbjartsdóttir Snót; Linda Vilhjálmsdóttir af skepnunni (Kona); Elísabet K. Jökulsdóttir Kona í spegli; Ingibjörg Haraldsdóttir Kona/tré; Sigurbjörg Þrastardóttir Móðir og barn; Margrét Lóa Jónsdóttir Leyndarmál (Álfkona) og Vigdís Grímsdóttir Torso. Verð 1200 krónur |
|
|
![]() |
Speglanir Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 2001 Skrá með samnefndri sýningu á verkum Helga Gíslasonar í Listasafni Sigurjóns september og október 2001. Undir fyrirsögninni Speglanir tekur Helgi aftur upp myndefni sem fjallar um einstaklinginn í rýminu og um hlutföll mannslíkamans.. Meðal efnis: Aðfaraorð Birgittu Spur, Reiða og óreiða, hugleiðing og viðtal Æsu Sigurjónsdóttur við listamanninn 2001. Ljósmyndir og yfirlit yfir störf, sýningar og opinber verk. Verð 700 krónur |
![]() |
Hærra til þín. Trúarleg minni í vestnorrænni list. - Passionstoner. Religiøse temaer i vestnordisk kunst Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og Listasafn Reykjavíkur-
Ásmundarsafn, Reykjavík 2000 Sýningarskrá með farsýningu á eftirtöldum stöðum: Listasafn Sigurjóns Ólafssonar; Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn; Listasavn Føroya, Tórshavn; Sophienholm, Lyngby; Museet på Sønderborg Slot og Museet for Religiøs Kunst med Bodil Kaalund Samlingerne, Lemvig. Sýningin var framlag LSÓ og Listasafns Reykjavíkur-Ásmundarsafns til Kristnihátíðar á Íslandi og Reykjavíkur Menningarborgar Evrópu árið 2000 og var á dagskrá þessara aðila. Sýnd verk, trúarlegs eðlis, eftir níu norræna listamenn frá Íslandi, Færeyjum, Noregi og Danmörku, sem ekki voru almennt þekktir fyrir trúarlega list. Meðal efnis: Herra Karl Sigurbjörnsson: Hærra til þín / Nærmere dig; Charlotte Christensen: Olivia Holm-Møller. Farven gul / Guli liturinn; Troels Andersen: J.A. Jerichau. Springet i farven / Stökkið í litnum; Eiríkur Þorláksson: Ásmundur Sveinsson. Um afstrakt krossa / Om abstrakte kors; Håkon A. Andersen: Hannah Ryggen og hendes religiøse motiver / Hannah Ryggen og trúarlegt myndefni hennar; Bárður Jákupsson: Sámal Elias Joensen-Mikines; Charlotte Christensen: Sigurjón Ólafsson. Pagten med naturen / Sáttmálinn við náttúruna; Per Hovdenakk: Robert Jacobsen; Per Hovdenakk: Jakob Weidemann; Charlotte Christensen: Svend Wiig Hansen. Den søgende tvivler / Leitandi efasemdarmaður. Verð 1200 krónur, takmarkað magn |
![]() |
Sigurjón Ólafsson. Ævi og list II Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1999 Í síðara bindi þessa ritverks rekur Aðalsteinn Ingólfsson fjölbreyttan listferil Sigurjóns frá því hann sneri heim til Íslands árið 1945 þar til hann vann síðasta verk sitt síðla árs 1982. Fjallað er um stefnur og strauma samtímans, þróun og breytingar í list Sigurjóns og framlag hans til höggmyndalistar nútímans. Heildarskrá yfir verk Sigurjóns á árunum 1945 til 1982 fylgir ritinu sem er prýtt fjölda ljósmynda. Bækurnar voru tilnefndar til Hinna íslensku bókmenntaverðlauna árið 1999 Verð 3.000 krónur |
|
|
![]() |
Sigurjón Ólafsson. Ævi og list I Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1998 Rakinn er ferill Sigurjóns Ólafssonar, eins helsta brautryðjanda í íslenskri höggmyndalist, birt heildarskrá yfir verk hans á árunum 1924 til 1945. Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur, ritar um uppvaxtarár Sigurjóns á Eyrarbakka og í Reykjavík og danski listfræðingurinn Lise Funder skrifar um nám hans og starf í Kaupmannahöfn á árunum 1928-1945 og þau tímamótaverk sem skipuðu honum sess meðal fremstu framúrstefnulistamanna á Norðurlöndum. Í bókinni eru yfir 200 ljósmyndir. Verð 3.000 krónur |
|
|
![]() |
Vættatal / Dialogue on Eerie Beings Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1996 Á íslensku og ensku. 24 bls. ISBN 9979-9124-3-X Í tilefni af Listahátíð í Reykjavík 1996 sýndi Páll á Húsafelli höggmyndir sínar með völdum verkum eftir Sigurjón, en báðir leituðu þeir fanga í íslenskri náttúru í myndsköpun sinni. Meðal efnis: Thor Vilhjálmsson: Vættatal í Sigurjónssafni; Aðalsteinn Ingólfsson: Af endurminningum náttúrunnar. Verð 300 krónur |
|
|
![]() |
Gunhild Skovmand einu sinni var... Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1995 Á íslensku og dönsku (jafnt). 24 bls. ISBN 9979-9124-2-1 Sýningarskrá í tilefni af sýningu á pappírsklippimyndum Gunhild Skovmand í Listasafninu 24. júní til 7. ágúst 1995 Efni: Birgitta Spur Aðfaraorð/Forord, Gunhild Skovmand Þankar/Tanker og Hans Laumann Um klippimyndir/Papirklip. Verð 300 krónur |
|
|
![]() |
Frá prímitívisma til póstmódernisma í norrænni höggmyndalist Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar og Hafnarborg Menningar-
og listastofnun Hafnarfjarðar, Reykjavík og Hafnarfjörður
1995. Á íslensku og ensku. 96 bls. ISBN 9979-9124-1-3 Sýningarskrá með samnefndri sýningu í LSÓ og Hafnarborg á norrænu menningarhátíðinni Sólstafir dagana 25.02 - 20.03 1995. Með sýningunni voru dregin fram helstu einkenni og straumar í höggmyndalist aldarinnar eins og þau birtust í verkum fimm norrænna listamanna, þeirra Bror Hjorth, Sigurjóns Ólafssonar, Mauno Hartman, Bjørn Nørgaard og Gunnar Torvund. Meðal efnis: Petrún Pétursdóttir og Birgitta Spur: Aðfaraorð; Küllike Montgomery: Bror Hjorth; Birgitta Spur: Sigurjón Ólafsson; Juhani Pallasmaa: Mauno Hartman; Claus Hagedorn-Olsen: Bjørn Nørgaard; Leena Mannila: Gunnar Torvund. Verð 800 krónur |
|
|
![]() |
Íslandsmerki og súlur Sigurjóns Ólafssonar Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1994 Á íslensku og ensku. 72 bls.
Sýningarskrá með samnefndri sýningu í tilefni fimmtíu ára afmælis íslenska lýðveldisins. Súla sem tákn kom víða fram í list Sigurjóns og voru mörg dæmi þess á sýningunni. Þá var sérstaklega fjallað um eitt þekktasta súlnaverk hans, Íslandsmerki, á Hagatorgi í Reykjavík. Myndin var gerð í tilefni 25 ára afmælis íslenska lýðveldisins. Meðal efnis: Birgitta Spur: Íslandsmerki og súlur Sigurjóns; Susanne Jorn: Vinátta (ljóð); Auður Ólafsdóttir: Frá súlu til Íslandsmerkis. Verð 800 krónur |
|
|
![]() |
Árbók LSÓ 1991 og 1992 Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1993 Á íslensku með enskum útdrætti. 118 bls. ISSN 1021-6626 Meðal efnis: Birgitta Spur: Skýrsla; Auður Ólafsdóttir: Myndir í fjalli. Lágmyndir Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara á framhlið stöðvarhúss Búrfellsvirkjunar 1966-69.; Sólveig Georgsdóttir: Saltfiskstöflun - veggmynd án veggjar; Ljóð eftir Susanne Jorn við síðasta verk Sigurjóns ásamt íslenskri þýðingu Steinunnar Sigurðardóttur: Spor í sandi; Inga Lára Baldvinsdóttir: Við myndlistarstörf á Eyrarbakka, frásögn af Agnesi Lunn; Þorgrímur Gestsson: Byggðarlag sem varð borgarhverfi, ágrip af þúsund ára sögu Laugarness við sund. Verð 800 krónur |
|
|
![]() |
Tracks in Sand Susanne Jorn Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1992. Aðeins gefin út í 500 eintökum Á ensku og japönsku í þýðingu Kazuko
Shiraishi. 48 bls. ISBN 9979-9069-3-6 Ljóð Susanne Jorn á ensku og japönsku við verk eftir Sigurjón Ólafsson. Verð 2500 krónur |
|
|
![]() |
Þessir kollóttu steinar / Those Rounded Stones Listasafn Sigurjóns Ólafssonar [myndband], Reykjavík 1992. Gefið út á íslensku og ensku.(VHS - PAL og NTSC) Myndband um andlitsmyndir Sigurjóns Ólafssonar, byggt að
hluta á viðtali sem Erlingur Jónsson, myndhöggvari
og aðstoðarmaður Sigurjóns um nokkurt skeið, tók
við listamanninn árið 1980. Meðal annars er fjallað
um formið, anatómíuna og yfirborð myndanna, ólíkar
aðferði við ólík efni, um ljós og skugga,
liti og hreyfingu. Leitast er við að skýra hugmyndir Sigurjóns
með einstökum verkum. Einnig er stuðst við ljósmyndir
og lifandi myndir af listamanninum við vinnu. Verð 2000 krónur |
![]() |
Sigurjón Ólafsson Danmark-Island 1991 Ritstjórar: Birgitta Spur, Troels Andersen og Sólveig Georgsdóttir Silkeborg Kunstmuseums Forlag, Silkeborg 1991 Á íslensku og dönsku. 108 bls. ISBN 87-87932-33-4 Sýningarskrá með farandsýningu á verkum Sigurjóns í Kastrupgårdsamlingen, Vejle Kunstmuseum, Silkeborg Kunstmuseum og LSÓ. Meðal efnis: Grethe Rostbøll: Forord; Svavar Gestsson: Tanker om en kunstner - Hugleiðingar um listamann; Birgitta Spur: Sigurjón Ólafsson - tradition og nyskabelse; Peter Eriksen: Han tog forskud på fremtiden; Susanne Jorn: viðtöl við Johan Galster, Robert Jacobsen og Pierre Lübecker. Verð 800 krónur |
|
|
![]() |
Sigurjón Ólafsson Andlitsmyndir / júní 1990 - maí 1991 Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1990. Sýningarskrá með samnefndri yfirlitssýningu á andlitsmyndum Sigurjóns Meðal efnis: Birgitta Spur skrifar aðfaraorð og Aðalsteinn Ingólfsson fjallar um andlitsmyndir Sigurjóns Ólafssonar í stuttu máli. Einnig er skrá yfir andlitsmyndir Sigurjóns Ólafssonar. Uppseld |
|
|
![]() |
Árbók LSÓ 1989 og 1990 Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1990 Á íslensku og dönsku. Enskur útdráttur.
98 bls. ISBN 9979-9064-1-3 Meðal efnis: Birgitta Spur: aðfaraorð og skýrsla; Bo Lagercrantz: Hugleiðing um hlutverk listamannasafna. Tankar kring konstärsmuseerna; Erlingur Jónsson: Þetta eru allt ljós og skuggar. Viðtal við Sigurjón Ólafsson frá árinu 1980; Birgitta Spur: Þetta var SAM-vinna, viðtal við Atla Heimi Sveinsson tónskáld og Thor Vilhjálmsson rithöfund um samvinnu þeirra við gerð sjónvarpsóperunnar Vikivaka; Auður Ólafsdóttir: Togstreita efnis og hugmyndar, Helgi Gíslason segir frá listaverki sínu í Fossvogskirkju. Verð 800 krónur |
|
|
![]() |
Málmverk og aðföng Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1989 Á íslensku og ensku. 56 bls. Sýningarskrá með samnefndri sýningu á járnskúlptúrum er Sigurjón Ólafsson gerði á árunum 1960 - 62 meðan hann dvaldist sjúkur á Reykjalundi. Þá voru einnig sýnd nýleg verk í eigu safnsins. Meðal efnis: Birgitta Spur: Aðfaraorð; Aðalsteinn Ingólfsson: Virkjun rýmis og tilviljun efnis. Verð 800 krónur |
|
|
![]() |
Árbók LSÓ 1987 og 1988 Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1988 Á íslensku og dönsku. 84 bls. Meðal efnis: Birgitta Spur: Aðfaraorð og skýrsla; Kveðjur frá vinum erlendis: Hemming Theisen og Ole Thomassen; Aðalsteinn Ingólfsson: Viðtal við Erling Jónsson myndhöggvara; Birgitta Spur: Lítil saga af steinum; Tora Raknes: Að tjá sig í myndum; Birgitta Spur: Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns í tilefni opnunar safnsins á Laugarnesi
Verð 800 krónur |
|
|
![]() |
Árbók Listasafns Sigurjóns Ólafssonar 1986 Ritstjóri: Birgitta Spur Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1986 Á íslensku, dönsku og ensku. 84 bls. ISBN 87-88755-061 Meðal efnis: L. Alcopley: Sigurjón og verk hans; H. P. Jensen: Heimsókn til Sigurjóns; Susanne Lyngborg: Ljóð; Elise Heide-Jørgensen: Sigurjón í Kaupmannahöfn; Otto Gelsted: Rundt om en Fjord, København 1943; Peter Eriksen: Hann tók forskot á framtíðina; Hans Mølbjerg: Óðinn situr að tafli; Björn Th. Björnsson: Grein í sýningarskrá 1980; Þór Magnússon: Laugarnesið, um sögu byggðar í Laugarnesi. Uppseld |
|
|
![]() |
Sigurjón Ólafsson myndhöggvari Ritstjóri: Birgitta Spur Styrktarsjóður Listasafns Sigurjóns Ólafssonar, Reykjavík 1985 Á íslensku, dönsku og ensku. 240 bls. Meðal efnis: Greinar eftir Thor Vilhjálmsson og Kristján Eldjárn; Blaðaviðtal Kristínar Halldórsdóttur við Sigurjón Ólafsson frá árinu 1965; Æviágrip í myndum; Skrá yfir verk eftir Sigurjón Ólafsson í safni hans. Uppseld |
![]() |