Sýningar og viðburðir         Hér má sjá hvenær safnið er opið
1. júní 2024 − 15. september 2024

ÞRÆÐIR OG ÞRÍVÍРFORM

Skúlptúrar í text­íl eftir Anni Bloch og í tré eftir Sigur­jón Ólafs­son

Án titils
silki
ÞRÆÐIR OG ÞRÍVÍРFORM

Sýn­ing á skúlp­túr­um dönsku textíl­lista­kon­unn­ar Anni Bloch og Sigur­jóns Ólafs­son­ar, sem eiga það sam­eigin­legt að hafa skap­að óhefð­bund­in lista­verk með gömlu hefð­bundnu hand­verki. Bæði hafa þau unn­ið í náttúru­efni og nýtt sér út í æsar þá mögu­leika sem efn­ið leyfði. Flest verka Anni eru unn­in í silki með nál og þræði á sama hátt og hefur verið gert frá ör­ófi alda, og verk Sigurjóns á sýn­ing­unni eru höggv­in í tré og oft bætt við þau öðrum efnum.

29. september 2023 − 12. maí 2024

Í efri sal:
HEIMA og HEIMAN



Í neðri sal:
Úr ýmsum áttum
− verk eftir Sigurjón Ólafsson

Þura − Þuríður Sigurðardóttir
Án titils 2023, olía á striga
Þura
Sýning á verkum Þuríðar Sigurðardóttur myndlistar- og söngkonu

Þura teng­ist safn­inu á sér­stak­an hátt þar sem stað­setn­ing þess í Laugar­nesi leik­ur lykil­hlut­verk. Á sýn­ing­unni býð­ur lista­mað­ur­inn áhorf­end­um í ferða­lag um staði og tíma sem bæði eiga sér al­menna og sögu­lega skír­skot­un en jafn­framt mjög persónu­lega ritar Markús Þór Andrés­son.


Úr ýmsum áttum

Framhald fyrri sýningar
3. febrúar til 24. september 2023

Í efri sal:
Barnalán



Í neðri sal:
Úr ýmsum áttum


Svava og Einar



Of hár blóðþrýstingur LSÓ 109
Barnalán

And­lits­mynd­ir Sigur­jóns af fjöl­skyldu Ein­ars Sigurðs­son­ar út­gerðar­manns í Vest­manna­eyj­um og Svövu Ágústs­dóttur, en á ár­un­um eftir 1963 fékk Einar Sigur­jón til að gera nær tvo tugi andlit­smynda, portretta, lág­mynda eða heil­mynd af sér og fjöl­skyldu sinni.
    Aðal­steinn Ingólfs­son list­fræð­ing­ur ritar texta í bækling sem fylgir sýn­ingunni.

Úr ýmsum áttum

Lykilverk Sigurjóns frá 1938 til 1982 úr ólíkum efnum, svo sem gifsi, bronsi, marm­ara og tré. Heiti sýn­inga­rinn­ar skír­skotar bæði til fjöl­breytni verk­anna og eignar­halds þeirra.
    Hluti verka­nna er úr stofn­gjöf Birgittu Spur til Lista­safns Sigur­jóns Ólafs­son­ar, sjálfs­eignar­stofn­un­ar sem fyrir ára­tug var afhent Lista­safni Ís­lands, en önn­ur eru úr einka­safni erf­ingja Sigur­jóns.
Utan safns
21. maí − 11. september 2022

Digte i træ

Sýning á verkum Sigurjóns Ólafs­sonar á
Norður­bryggju í Kaupmannahöfn



Sýning á völdum verkum Sigurjóns Ólafssonar úr einka­safni erfingja hans á Ís­landi og í Dan­mörku.

Þann 22. maí kl. 15 ræddi Anne Blond listfræðingur við Birgittu Spur um list Sigur­jóns og á eftir svaraði hún spurn­ing­um úr sal. Viðtalið fór fram á dönsku og má nálgast hér.

Listi með verkum á sýningunni
5. febrúar til 27. nóvember 2022

Í efri sal:
Veggmynd án veggjar
Saltfisk­stöflun


Í neðri sal:
Sjón er sögu ríkari
framhald sýningar (breytt)
Saltfisk­stöflun LSÓ 1034 Saltfisk­stöflun, LSÓ 1034 Rifjuð er upp tilurð verksins Saltfisk­stöflun (LSÓ 1034) sem Sigur­jón mót­aði í leir á ár­un­um 1934−­1935 meðan hann var við nám í Kon­ung­lega Lista­háskól­an­um í Kaup­manna­höfn. Sigur­jón ætl­aði verk­inu að prýða hús Fiski­félags Ís­lands í Reykja­vík, en það var eftir nokk­urt þóf steypt í stein­steypu og sett upp sem frítt stand­andi lág­mynd nálægt Sjó­manna­skól­anum í Reykja­vík.
    Birt eru brot úr nýj­um niður­stöð­um verk­fræð­ings Verkís sem fjall­ar um ástand lág­mynd­ar­inn­ar í dag. Einnig eru sýnd­ar ljós­mynd­ir af verk­um Sigur­jóns frá sama tíma­bili, þegar hann vann með stór­um og ein­föld­um form­um í anda Púr­ism­ans.
Bæklingur um sýninguna.
19. október 2019 − 30 nóvember 2021

Sjón er sögu ríkari

Sýning á verkum Sigurjóns Ólafsson tileinkuð heimsóknum skólabarna og foreldra þeirra

Fræðslu­pakki fyrir grunn­skóla­nema

Listi með verkum á sýningunni
Fótboltamenn, LSÓ 247 Fótboltamenn, LSÓ 247 Fjöl­breytt verk eftir Sigur­jón,bæði natúral­ísk verk og af­strak­sjón­ir, allt frá náms­ár­um hans við Kon­ung­lega lista­háskól­ann í Kaup­manna­höfn og þar til hann lést í Reykja­vík. Þar á með­al eru frum­drög að nokkr­um lykil­verk­um lista­manns­ins, sem hafa verið stækk­uð og sett upp í opinberu rými, til dæmis Fót­bolta­menn frá 1936, sem stendur á Faxa­torgi á Akra­nesi, Gríma frá 1947 sem var sett upp við Borgar­leik­hús­ið í Reykja­vík og Vík­ing­ur frá 1951, sem Sigur­jón hjó síðar í grá­stein og stend­ur við Lista­safn Ís­lands.

    Í fræðslu­pakka Lista­safns Sigur­jóns Ólafs­son­ar fyrir grunn­skóla­nema, sem nefnist Far­veg­ur mynd­list­ar til fram­tíð­ar, eru verk­efni fyrir nem­end­ur sem fjalla um mörg verk á sýn­ing­unni. Til­gang­ur fræðslu­pakk­ans er sá að grunn­skóla­kenn­ar­ar geti nýtt sér raf­ræna lista­verka­skrá safns­ins til kennslu og kynnt þann­ig lista­verk Sigur­jóns fyrir nemed­um hvar sem er á landinu.

Utan safns
14. september 2019 − 1. marz 2020

Sigurjón Ólafsson
Mangfoldige former


Sýning í listasafninu í
Tønder á Jótlandi



Listi með verkum á sýningunni

Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar úr einka­safni erfingja hans á Ís­landi og í Dan­mörku og einnig úr þar­lendum söfnum.
    Gefin hefur verið út vegleg sýningarskrá: Sigurjón Ólafsson − Mangfoldig modernisme með ljósmyndum af öllum 44 verkunum á sýningunni og greinum eftir sýningar­stjór­ann Önnu Blond og list­fræðing­ana Aðal­stein Ingólfs­son, Jens Peter Munk, Kerry Greaves, Lise Funder og Æsu Sigur­jóns­dótt­ur.
    Þau fjalla um um þátt­töku Sigur­jóns í danskri framúr­stefnu­list á um­brota­tím­um í danskri lista­sögu á fjórða og fimmta áratug síðustu aldar. Þá ritar Pétur H. Ár­manns­son arkitekt um sam­starf Sigur­jóns við danska og íslenska arkitekta.

20. október 2018 − 6. október 2019
 
30 ára afmælissýningar:

Tengingar
Sigurjón Ólafsson og nokkrir samferðamenn hans

Bæklingur


Ísland − landslag og litir
Glerjuð steinleirsverk eftir Sabine Hasler

Bæklingur
Visifingur
Vísifingur, LSÓ 093
Í aðalsal
Höggmyndir eftir Erling Jónsson, Gerði Helgad­óttur, Gest Þor­gríms­son, Guð­mund Bene­dikts­son, Guð­mund Elías­son, Hall­stein Sigurðs­son, Helga Gísla­son, Jón Bene­dikts­son, Kristínu Jóns­dóttir frá Munka­þverá, Svövu Björns­dóttur, Sverri Haralds­son, Tove Ólafs­son, Örn Þor­steins­son og Pál Guð­munds­son frá Húsa­felli. Öll tengdust þau Sigur­jóni og list hans með einum eða öðrum hætti og fer vel á því að verk þeirra eigi samtal við nokkur verk eftir Sigur­jón í fyrrum vinnu­stofu hans, þegar 30 ár eru liðin frá því að vinnu­stofunni var breytt í sýningar­sal.
Sýn­ingar­stjóri er Birgitta Spur
  Viðburður á safnanótt, 8. febrúar 2019
kl. 21 Listamannaspjall Svövu Björnsdóttur og Kristínar Jónsdóttur frá Munkaþverá
Sabine Hasler
Í efri sal
Keramík úr steinleir eftir sviss­nesku lista­konuna Sabine Hasler, en hún hefur tengst safninu vináttu­bönd­um frá upp­hafi. Hún hannaði og gerði bolla­stell úr ljós­um stein­leir fyrir kaffi­stof­una, prýtt merki safns­ins.
    Á sýn­ing­unni birt­ast í glerj­ung og kera­míki hug­hrif hennar af ís­lenskri nátt­úru frá fjöl­mörg­um ferða­lög­um henn­ar um land­ið.

Málverk eftir Björgu Þorsteinsdóttur lýsir upp stigaganginn og tengir saman sýn­ing­arn­ar.

Sýn­ingar­stjóri er Birgitta Spur
  Viðburður á safnanótt, 8. febrúar 2019
kl. 22 Hlíf Sigurjónsdóttir leiðir gesti um sýninguna
28. apríl − 7. október 2018

Tveir samherjar
Asger Jorn og Sigurjón Ólafsson


− framhald fyrri sýningar
13. − 22. apríl 2018


Við mið // at present

Samstarfsverkefni Listasafns Íslands, Listaháskóla Íslands og Háskóla Íslands í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar

Ný verk meistara­nema í mynd­list við Lista­háskóla Ís­lands og skúlp­túrar Sigur­jóns Ólafs­son­ar mæt­ast í marg­radda sam­tali und­ir sýn­ingar­stjórn meist­ara­nema í list­fræði við Há­skóla Ís­lands.
Sýningarsrká

Sýningarskrá
(flettiforrit)
Á sýningunni Við mið stend­ur ekkert í stað. Hér er sam­vinnan og sam­talið í for­grunni, en það teygir anga sína bæði aftur í tímann og fram á við. Skúlp­túr­verk Sigur­jóns Ólafs­son­ar, safn­ið sem ekkja hans Birgitta Spur kom á fót eftir að hann lést, ásamt sögu stað­ar­ins sem bygg­ing­in stend­ur á, eru upp­spretta nýrrar sköp­un­ar. Hér mæta tíu mynd­listar­nemar verk­um Sigur­jóns. Við mið er afurð þessa fund­ar sem berg­mál­ar út yfir mörk mód­ern­ism­ans og inn í núið.
    Listamenn: Guðríður Skugga Guð­laugs­dótt­ir, Kat­rina Jane Perry, Kimi Tayler, Kirill Lorech, Mar­grét Helga Sess­elju­dótt­ir, Marie Lebrun, María Hrönn Gunnars­dóttir, Pier-Yves La­rouche, Ragn­heið­ur Guð­munds­dóttir, Sihan Yang og Sigur­jón Ólafs­son.
    Sýningarstjórar: Ás­gerð­ur Júníus­dótt­ir, Ragn­heið­ur K. Sig­urðar­dótt­ir, Sunna Ást­þórs­dótt­ir og Þor­gerð­ur Þór­halls­dótt­ir.
    Verkefnisstjórar: Bryn­dís H. Snæ­björns­dóttir, fag­stjóri meistara­náms í mynd­list við Lista­háskóla Ís­lands og Æsa Sig­ur­jóns­dótt­ir, dós­ent í list­fræði við Há­skóla Ís­lands.
21. október 2017 − 8. apríl 2018

Tveir samherjar
Asger Jorn og Sigurjón Ólafsson


Listi
með verkum á sýningunni

Textahefti
eftir Birgittu Spur
Tveir Samherjar
Asger, Sigurjón og Dagur Sigurjónsson
Sigur­jón Ólafs­son og Asger Jorn voru báð­ir áhrifa­vald­ar í fram­úr­stefnu­list­inni í Dan­mörku á fjórða og fimmta ára­tug lið­inn­ar ald­ar og áttu í nán­um tengsl­um þar til Sigur­jón hvarf til Ís­lands að stríði loknu. Báð­ir tóku þeir þátt í tíma­móta­sýn­ing­un­um Lini­en 1937, Skand­inav­erne 1939 og Telt­ud­still­ing­en 1941.
    Sumarið 1967 kom Asger til Ís­lands, hann var þá að undir­búa hið mikla bók­verk um forn­nor­ræna mynd­list. Hann hafði með­ferð­is nokkur graf­ísk verk sem hann, að til­lögu Sigur­jóns, gaf Fé­lagi ís­lenskra mynd­listar­manna til að afla tekna fyr­ir fyrir­hug­að­an sýn­ingar­sal. Lista­safn Ís­lands keypti verk­in. Síð­ar var Lista­safn­inu gef­ið mál­verkið Tron II sem Asger hafði gef­ið Sigur­jóni á Dan­merku­rár­um hans.
    Með því að stilla sam­an þeim lista­verk­um eftir Asger Jorn sem eru í eigu Lista­safns Ís­lands og völd­um verk­um Sigur­jóns frá svip­uð­um tíma, verð­ur efnt til sam­tals sem ætlað er að varpa ljósi á ó­könn­uð tengsl milli þess­ara áhrifa­miklu lista­manna.
Sýn­ingar­stjóri er Birgitta Spur
  • Sunnudaginn 22. október 2017 kl. 15:00
Birgitta Spur: Leiðsögn um sýninguna
  • Sunnudaginn 12. nóvember 2017 kl. 15:00
Jón Proppé listheimspekingur flytur erindið Skapandi andspyrna: Framsæknir listamenn
kynningmyndband
3. september 2016 − 15. október 2017

Samskeytingar

Uppbygging verka Sigurjóns Ólafssonar


Listi
með verkum á sýningunni

Textahefti
Aðalsteinn Ingólfsson listfræð­ingur ritar aðfaraorð að sýn­ing­unni.
Konan í húsinu 
      LSÓ 1327
Konan í húsinu
LSÓ 1327
Sigurjón Ólafsson er þekktur sem mynd­höggvari af gamla skólanum. Auk þess að höggva í stein, tré og jafnvel málm var hann ötull við að móta í leir og gifs og sjóða saman listaverk úr málmi. Einnig má segja að stóran hluta verka hans frá sjöunda og átt­unda áratug liðinnar aldar megi flokka undir það sem kallað hefur verið sam­skeytingar „assemblage“. Þá er viðar­bútum, til­sniðn­um eða eins og þeir koma fyrir, skeytt utan á tiltekinn kjarna svo úr verður heil­stætt listaverk.

    Á þessari sýn­ingu gefur að líta úrval verka af þessum toga, sem ekkja lista­mannsins, og sýn­ingar­stjóri Birgitta Spur hefur valið.

    Sunnudaginn 16. október 2016 kl. 15:00
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur: Leiðsögn um sýninguna
    Sunnudaginn 19. febrúar 2017 kl. 15:00
Halldór Björn Runólfsson safnstjóri Listasafns Íslands: Leiðsögn um sýninguna
    Safnanótt í Reykjavík, 3. febrúar 2017 kl. 20:30 og 21:30      
Á gömlum merg − Dúó Landon leikur tónlist þriggja alda.
Elstu verkin eru frá 17. öld, en það yngsta frá liðnu ári. Heyra má hvernig nútímaverk byggja á aldagamalli tónlistarhefð − á sama hátt og myndlist Sigurjóns er nútímaleg, en byggir á einnig á aldagamalli hefð handverksins.
1. − 11. desember 2016

HVOLFSPEGILL / UPSIDEDOME

Samstarfsverkefni Listasafns Íslands og nema í Listaháskóla Íslands (LHÍ) og Háskóla Íslands (HÍ)

Rafræn sýningarskrá
Ellefu meistaranemar við myndlistardeild LHÍ sýna verk sín, undir sýningar­stjórn meistara­nema í HÍ í list­fræði, í því rými sem Sigur­jón Ólafs­son vann sín verk − og þar sem sýning á verkum hans, Sam­skeyt­ingar, stendur nú yfir. Lista­verk Sigur­jóns, vinnu­ferill og að­ferðir, ásamt sjálfri safn­bygg­ing­unni, sögu hennar og um­hverfi safns­ins móta aðkomu nem­enda að listav­erkum sín­um.
    Bryndís Snæ­björns­dótt­ir prófessor við Mynd­listar­deild LHÍ og Hlynur Helga­sonar lektor í List­fræði­deild HÍ hafa yfir­umsjón með sýningunni.

Sjá nánar í frétt Listaháskólans      
17. október 2015 − 28. ágúst 2016

Gyðjur

konumyndir Sigurjóns Ólafssonar



Listi
með verkum á sýningunni

Textahefti
Birgitta Spur ritar texta um sérhvert verk á sýningunni.
Kona úr baði LSÓ 013
Kona úr baði, 1948
LSÓ 013
Portrett af konum eftir Sigurjón Ólafsson ásamt öðrum verkum hans, höggvin í stein eða tré, þar sem hinni kvenlegu ímynd - das ewig weibliche - er lýst og hún tekur á sig mynd gyðjunnar. Sýningin er í tilefni þess að 100 ár eru liðin frá því að konur fengu kosningar­rétt á Íslandi.

    Sigurjón Ólafsson er meðal þekktustu portrett­listamanna Norðurlanda og eftir hann liggja rúmlega 200 andlits­myndir. Flestar eru þær af karlmönnum í ábyrgðar­stöðum í þjóð­félaginu, en kven­portrett Sigurjóns eru síður þekkt, að undan­skilinni myndinni sem hann gerði af móður sinni á1938. Fyrir þá mynd hlaut Sigurjón hin eftir­sóttu dönsku Eckersberg verðlaun árið 1939. Ríkis­listasöfn þriggja Norðurlanda eiga eintök af þeirri mynd.

Sýningarstjóri: Birgitta Spur
23. apríl − 20. september 2015

Samspil
Sigurjón Ólafsson & Finn Juhl
Hugarflug milli höggmyndar og hönnunar


Höggmyndir eftir Sigurjón Ólafsson og húsgögn eftir danska hönnuðinn og arkitektinn Finn Juhl

Onecollection og EPAL styrkja sýninguna.

Sýningarskrá
Kona LSÓ 1066
Kona, 1942
LSÓ 1066
Varpað verður nýju ljósi á tengsl danska arkitektsins Finn Juhl (1912-1989) og Sigurjóns Ólafssonar á árunum 1940 til 1945. Þeir voru báðir brautryðjendur, hvor á sínu sviði, og fóru ótroðnar slóðir í tilraunum sínum með form og efni.

Á sýningunni verða meðal annars húsgögn sem Finn Juhl sýndi á Snedkerlaugets Møbeludstilling í Kaupmannahöfn 1940 og 1941, stóllinn Pelikanen og sófinn Poeten, ásamt skúlptúrum eftir Sigurjón sem Finn Juhl valdi í samleik við húsgögn sín.

Á síðari árum hafa verk Finns Juhl notið mikilla vinsælda um víða veröld. Danska fyrirtækið Onecollection hefur einkaleyfi á að framleiða húsgögn hönnuð af Finn Juhl.

Sýningarstjórar: Birgitta Spur og Æsa Sigurjónsdóttir.

    Sunnudaginn 10. maí kl. 15:00
Fyrirlestur Aðalsteins Ingólfssonar
Danish Modern: Finn Juhl og gullöld danskrar húsgagna­hönnunar.
Fjallað verður um þróun nýrrar húsgagnahönnunar í Danmörku á árunum 1930−1960.

    Sunnudaginn 21. júní kl. 15:00
Leiðsögn í fylgd Birgittu Spur.
    Sunnudaginn 5. júlí kl. 15:00
Leiðsögn í fylgd Æsu Sigurjóns­dótt­ur list­fræð­ings.
    Sunnudaginn 6. september kl. 15:00
Leiðsögn í fylgd Hörpu Þórs­dóttur list­fræðings og forstöðu­manns Hönnunar­safns Íslands. Finn Juhl og íslensk húsgagna­hönnun.
    Sunnudaginn 20. september kl. 15:00
Leiðsögn í fylgd Birgittu Spur og Æsu Sigurjóns­dóttur list­fræðings.
31. janúar − 22. mars 2015

Í efri sal:
Listamaður á söguslóðum
Teikningar frá ferðum danska málarans Johannes Larsen um Ísland 1927 og 1930.

Viðburðir tengdir sýningunni eru á
Safnanótt, föstud. 06.02 kl. 20:00 og 21:30 og sunnudagana 06.02, 15.02, 22.02, 01.03, 15.03 og 22.03 kl. 15:00




í neðri sal safnsins:
Valin verk Sigurjóns
Blótsteinn á Þórsnesi
Blótsteinn á Þórsnesi.
Johannes Larsen 1927
Árið 1926 stóðu rithöfundarnir Gunnar Gunnarsson og Johannes V. Jensen fyrir því að gefa út danska þýðingu Íslendingasagna í tilefni þess að árið 1930 voru eitt þúsund ár liðin frá stofnun Alþingis á Þingvöllum.

Danski listmálarinn Johannes Larsen (1867-1961) var fenginn til að koma til Íslands og festa á teikni­blokk sína helstu sögu­staði landsins. Teikn­ingunum var ætlað að gefa dönskum lesendum innsýn í atburða­svið sagnanna en ekki vera myndræn lýsing á atburðum eða sagna­persónum.

Johannes Larsen kom tvisvar til Íslands í þessum tilgangi, sumrin 1927 og 1930, og ferðaðist um á hesti, oft við mjög erfið skilyrði, og var aðal­fylgdar­maður hans Ólafur Túbals, bóndi og listmálari frá Múlakoti í Fljótshlíð. Á þessum ferðum sínum teiknaði Johannes Larsen um þrjú hundruð túss­teikninga, og birtust 188 þeirra í bókunum.

Teikningarnar á þessari sýningu eru í eigu afkomenda listamannsins í Danmörku, Svíþjóð og Banda­ríkjunum. Það er alfarið elju og dugnaði sýningar­stjórans og Íslands­vinarins Vibeke Nørgaard Nielsen að þakka að þessar teikningar koma nú fyrir almennings­sjónir, hér, og á Norður­bryggju í Kaup­manna­höfn á liðnu vori.

Stærstan hluta listaverka Johannesar Larsen; málverk, teikningar, dúk- og tréristur, er að finna á safni hans Johannes Larsen Museet í Kerteminde á Fjóni.

Styrktaraðilar sýningarinnar eru: •Johannes Larsen Museet •Velux Fonden •Fondet for Dansk-Islandsk Samarbejde •Familien Hede Nielsens Fond •TVG-Zimsen og •Danska sendiráðið á Íslandi.
24. maí − 26. okt. / 30. nóv 2014

Spor í sandi

Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar
í Listasafni Sigurjóns og Listasafni Íslands.
Sigurjón
       Ólafsson
Spor í sandi
LSÓ 160
Í Listasafni Sigurjóns á Laugarnesi eru verk frá námsárum hans 1928 til 1935, en í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg eru valin verk frá 1936 til 1982.

    Reynt er að tengja verkin sem Sigurjón vann í Danmörku við hið listræna umhverfi sem þau eru sprottin úr, og því eru einnig sýnd verk eftir samtímamenn og vini hans frá fjórða og fimmta áratug liðinnar aldar, þau Asger Jorn, Ejler Bille, Erik Thommesen, Robert Jacobsen og Sonja Ferlov.

Sýningarskrá með rannsóknarritgerð eftir Æsu Sigurjónsdóttur listfræðing ásamt ítarefni um Sigurjón Ólafsson. Æsa fjallar um Sigurjón og tengsl hans við danska listaumhverfið á fjórða og fimmta áratug liðinnar aldar.

Málþing um Sigurjón Ólafsson 6. september 2014
Tracks in Sand. Rit (á ensku og dönsku) með greinum byggt á erindum ráðstefnunnar, útgefið 2017.
Listi með verkum á sýningunni
7. febrúar - 4. maí 2014


Börn að leik

Höggmyndir eftir Sigurjón Ólafsson
Sigurjón Ólafsson
Börn að leik
LSÓ 206
Sýning á höggmyndum úr safni Sigurjóns Ólafssonar.
Heiti sýningarinnar, Börn að leik, vísar bæði í veggmynd Sigurjóns frá árinu 1938 og einnig önnur verk þar sem hann leyfði barnslegum léttleika að ráða ferðinni og gætu vakið áhuga barna og unglinga á myndlist Sigurjóns.

Leiðsagnir um sýninguna eru kynntar hér.

   Listi með verkum á sýningunni
25. apríl - 1. desember 2013


Úr djúpunum


Höggmyndir eftir Sigurjón Ólafsson
Málverk eftir Þorvald Skúlason, Svavar Guðnason, Nínu Tryggvadóttur, Kristján Davíðsson og Guðmundu Andrésdóttur
Sigurjón Ólafsson
Samstæða
LSÓ 059
Valin verk úr safneign Listasafns Íslands og Listasafns Sigurjóns Ólafssonar þar sem teflt er saman höggmyndum eftir Sigurjón og málverkum eftir nokkra samtímamenn hans.
    Listamennirnir eiga það sameiginlegt að hafa verið við nám erlendis á mótunar- og þroskaárum sínum og tekið þátt í sýningum þarlendra framúrstefnumanna.
    Heim komnir til Íslands voru þeir í fararbroddi þeirrar formbyltingar, sem kennd er við módernismann og markar einstakt blómaskeið í íslenskri myndlistarsögu.

Titillinn Úr djúpunum vísar til þess að undir undir tæru yfirborði verkanna, má greina kviku heitra tilfinninga og angistar sem einkenndi þessa tíma Kalda stríðsins.

Bæklingur um sýninguna
10. febrúar 2012 - 14. apríl 2013


Áfangar
lykilverk eftir Sigurjón Ólafsson
Sigurjón Ólafsson
Tvær systur, Inger og Ingeborg Pedersen. LSÓ 191
ÁFANGAR - nokkur lykilverk eftir Sigurjón Ólafsson - spannar rúmlega 50 ára tímabili um miðbik liðinnar aldar.

Á sýninguna voru valin verk sem eru einkennandi fyrir ákveðin tímabil, eða sem marka upphaf að nýjum viðhorfum og straumum í list Sigurjóns. Sérhverju verki fylgir skýringartexti ritaður af Birgittu Spur.

Um sýninguna
17. september - 27. nóvember 2011


Hryggjarstykki
skúlptúrar Svövu Björnsdóttur
Svava Björnsdóttir
Svava Björnsdóttir
Sýning á nýjum verkum eftir Svövu Björnsdóttur úr pappírsbeðmi ásamt verkum eftir Sigurjón sem hún hefur valið.

    Sum verka Svövu eru efnismikil og hafa einkenni rýmisverka, en önnur virka eins og sambland af skúlptúr og málverki, þar sem litir og form mynda ljóðræðna heild. Svava tekur ávallt mið af sýningar­rýminu sjálfu, og vinnur verk sín gagngert með sýningaraðstöðuna í huga; hún lætur verkin virkja rýmið og úr verður ný myndræn upplifun.

Veggspjöld

Á neðri hæð safnsins eru valin verk eftir Sigurjón Ólafsson.
UTAN SAFNS
11. september - 23. október 2011


Íslenskir módernistar og Kai Nielsen

í Listasafninu í Svendborg á Fjóni
SAK
Svendborg Amts Kunstforening
á Fjóni, Danmörku
Valin verk eftir myndhöggvarana Kai Nielsen og Sigurjón Ólafsson, vatnslitamyndir eftir Hafstein Austmann og Björgu Þorsteinsdóttur og málverk eftir samtímamenn Sigurjóns, Þorvald Skúlason, Nínu Tryggvadóttur, Guðmundu Andrésdóttur og Kristján Davíðsson.


Um Listasafnið í Svendborg á Fjóni
Um sýninguna
Verk Sigurjóns á sýningunni
Dómur um sýninguna í Kunstavisen 9 2011
Um Tónleika í tengslum við sýninguna: "Myndir í tónlistinni" í Borgerforeningen 29. september
11. febrúar - 28. ágúst 2011


Súlur Sigurjóns
og
„Íslendingur“
Dreki LSÓ 094
Dreki LSÓ 094
„Súlan í ýmsum myndum er eitt grundvallarstefið í myndhugsun Sigurjóns Ólafssonar myndhöggvara allt frá fyrstu sjálfstæðu verkum hans í Kaupmannahöfn á fjórða áratug liðinnar aldar [t.d. Stofninn] til síðustu verka hans árið 1982.“
Auður Ólafsdóttir: Íslandsmerki og súlur Sigurjóns, LSÓ, 1994

Meðal þekktustu súlna Sigurjóns eru án efa „Monumental“ verkin Íslandsmerki á Hagatorgi og Öndvegissúlur við Höfða. Á þessari sýningu er sjónum hins vegar beint að völdum trésúlum Sigurjóns frá síðustu æviárum hans með tilbrigðum sem sýna hugmyndaauðgi listamannsins.


 

Safnanótt í Reykjavík óskaði eftir að söfn fjölluðu um þemað „Íslendingur“. Listasafn Sigurjóns setti á stall þekkt portrett af móður Sigurjóns sem var sönn íslensk alþýðukona sinnar tíðar ásamt upplýsingaspjöldum um hana.

Fjölrituð sýningarskrá
16. september - 28. nóvember 2010


„Erlingur minn, hvað ertu nú að gera?“
Höggmyndir Erlings Jónssonar og Sigurjóns Ólafssonar

Erlingur Jónsson
Erlingur Jónsson myndlistarmaður var tíður gestur í vinnustofu Sigurjóns á Laugarnesi. Kom hann til að aðstoða Sigurjón eða leita álits hans, og oft færði hann Sigurjóni efni í tréskúlptúra - göfugan við úr fjárlægum löndum. Það þurfti lítið fyrir Erlingi að hafa, hann kom og fór fyrirvararlaust eins og fuglinn fljúgandi, en ávallt fylgdi honum sérstakur andblær þess manns, sem lifir og hrærist í heimi myndlistar, tónlistar og bókmennta. Mér er til efs að aðrir hafi verið jafn nálægt sköpunar- og vinnuferli Sigurjóns og Erlingur var á þeim árum“
[Birgitta Spur, úr formála að sýningarskrá]

Engum hefur verið betur treyst til að endurgera eða stækka verk Sigurjóns og í viðtali sem Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur á við Erling og birt er í sýningarskrá er fjallað um þennan þátt í ævistarfi Erlings.

Verk á sýningunni
12. febrúar - 5. september 2010
Í efri sal safnsins


Hver er maðurinn?

Guðmundur Thoroddsen, LSÓ 248
Á safnanótt í Reykjavík þann 12. febrúar 2010 var sett upp portrettsýning með níu kunnum íslendingum og var gestum boðið að reyna að þekkja þá. Átján af þeim 36 sem svöruðu gátu rétt.

Gestir safnsins geta enn spreytt sig á spurningaleiknum þótt ekki séu veitt verðlaun nú.



Samhliða sýningunni Stund hjá Sigurjóni sem er í neðri sal.
21. október 2008 - 5. september 2010


Stund hjá Sigurjóni
afmælissýning í Laugarnesi
Tilefni sýningarinnar er að þann 21. október 2008 voru liðin 100 ár frá fæðingu listamannsins og þá voru einnig 20 ár frá því að safn hans á Laugarnesi var opnað almenningi.

Sýningin er sérstaklega ætluð börnum í fylgd fullorðinna. Gestir fá afhent spjöld með spurningum og upplýsingum sem veita nýja sýn á listaverkin og hvetja til umræðu um þau.

Sýningunni lítillega breytt 12. febrúar 2010
Listaverkaskrá


Sýningin er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík 2009.
UTAN SAFNS
4. október - 9. nóvember 2008


Sigurjón og Þorvaldur
- tveir módernistar

Sýning í Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar

Þorvaldur og Sigurjón

Ljósmyndir frá sýningunni
Sýning á höggmyndum eftir Sigurjón Ólafsson og málverkum og teikningum eftir Þorvald Skúlason. Að sýningunni stóðu Listasafn Sigurjóns og Listasafn Háskóla Íslands. Nánar hér

Í tengslum við sýninguna var gefin út 48 síðna myndskreytt sýningarskrá með greinum eftir Gunnar J. Árnason og Auði Ólafsdóttur.

Einnig hefur verið gefinn út DVD geisladiskur með þremur heimildamyndum um Sigurjón Ólafsson.
Hesten på Kongens Nytorv.
    Um endurgerð riddarastyttunnar á Kóngsins Nýjatorgi í Kaupmannahöfn.
Saga af lágmynd.
    Um veggmyndir Sigurjóns á Búrfellsstöð.
Þessir kollóttu steinar.
    Heimildamynd um andlitsmyndir Sigurjóns.

Á sýningunni verður hægt að skoða kvikmynd um Þorvald Skúlason frá árinu 1978 og þær þrjár kvikmyndir um Sigurjón sem getið er um hér að ofan.
Skrá með verkum eftir Sigurjón
UTAN SAFNS
26. sept. - 31. des. 2008



Sigurjón Ólafsson og hans portrætter

Friðriksborgarhöll á Sjálandi
Det Nationalhistoriske Museum på Frederiksborg Slot

 
Sýning á 26 andlitsmyndum eftir Sigurjón íhinu þekkta safni í Friðriksborgarhöll í Hillerød á Sjálandi. Samhliða sögulegri sýning um tengsl Danmerkur og Íslands.

Þann 18. september kom út 128 síðna rit, Billedhuggeren Sigurjón Ólafsson og hans portrætter, þar sem danski listfræðingurinn Charlotte Christensen fjallar um portrettlist Sigurjóns og þýðingu hans fyrir danskt menningarlíf á þeim árum sem hann nam og starfaði í Danmörku, frá 1928 til 1945. Ritinu fylgir sýningarskrá með ljósmyndum af öllum verkunum á sýningunni og myndskreytt æviágrip Sigurjóns. Bókin er í tveimur útgáfum, danskri og enskri.

Ljósmyndir frá sýningunni
UTAN SAFNS
14. júní - 31. ágúst 2008

Fljúgandi steinsteypa

Í Búrfellsvirkjun, aflstöð Landsvirkjunar í Þjórsárdal


Búrfellsvirkjun
Búrfellsvirkjun í Þjórsárdal
Sýning í stöðvarhúsi Búrfellsvirkjunar á verkum Sigurjóns Ólafssonar sem tengjast stóru vegg­myndum hans þar.

Sýningin er opin síðdegis í allt sumar og er ókeypis aðgangur.

Gefinn var út einblöðungur á íslensku og ensku sem hér má nálgast.
Listaverkaskrá

5. apríl - 7. september 2008


Úr fórum safnsins
Konungleg sýning
Sýning á verkum Sigurjóns sem var sett upp í tilefni heimsóknar krónprinshjónanna dönsku, Friðriks og Mary, 5. maí 2008.

Listaverkaskrá

Ljósmyndir frá heimsókninni
©: Anne-Mette Kruse, Danmark
23. febrúar 2007 - 30. nóvember 2007


www.lso.is
- grunnskólanemar velja verk á sýningu í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar
Vikingur
Víkingur, LSÓ 162
Heildarskrá listaverka Sigurjóns Ólafssonar, sem var gefin út á prenti á árunum 1998 og 1999, hefur nú verið færð á vefinn. Til að kynna netskrána var grunnskólanemum boðið að skoða ákveðið úrtak úr henni og hver og einn mátti velja sér eitt listaverk sem hann óskaði eftir að sjá á þessari sýningu. Ætlast var til að óskinni fylgdi texti, rökstuðningur, túlkun á listaverkinu, hughrif við skoðun á því, ljóð, prósi eða annað slíkt. Myndmenntakennarar grunnskólanna aðstoðuðu nemendur við verkefnið.

    Safninu bárust um 100 óskir og er aðeins pláss til að sýna um helming þeirra verka sem valin voru. Við endanlegt val verka var tekið tillit til texta nemendanna og einnig heildarsvips sýningarinnar.

    Valin textabrot úr bréfunum má sjá í sýningarskrá. Við opnun sýningarinnar voru veitt verðlaun fyrir bestu textana
17. september 30. nóvember 2006


Hjól - Plógur - Vængir
Gestasýning Hallsteins Sigurðssonar

Hallsteinn Sigurðsson
Ný málmverk eftir Hallstein Sigurðsson myndhöggvara
Um verk Hallsteins kemst Jón Proppé svo að orði í sýningarskrá:  Verk hans eru langflest unnin í málm, einkum járn og ál, og báru framan af sterk einkenni módernismans, líkt og til dæmis síðari verk þeirra Ásmundar Sveinssonar og Sigurjóns Ólafssonar. Nýrri verk Hallsteins eru gjarnan léttar formstúdíur þar sem hann notar granna teina og kúpta fleti til að teikna upp form og hreyfingar í rýinu. Léttleiki og tær myndhugsun eru aðall Hallsteins og innra rými verkanna er opið, afmarkað með fáum en skýrum dráttum.

Fréttatilkynning með myndum
Grein Jóns Proppé í sýningarskrá
27. maí - 3. september 2006

Sumarsýning
Þrá
Þrá, LSÓ 234
Úrval skúlptúra og portretta eftir Sigurjón Ólafsson

Listaverkaskrá
24. febrúar (safnanótt) - 14. maí 2006

Út á skýjateppið
Draumsæi og náttúrufar þriggja listforma

Helga Pálína Brynjólfsdóttir
Berglind Gunnarsdóttir
Sigurjón Ólafsson

Helga Pálína Brynjólfsdóttir
Tóftir
Á sýningunni mætast þrjú ólík efnisform: tré- og koparverk Sigurjóns Ólafssonar, textílar Helgu Pálínu Brynjólfsdóttur og ljóð Berglindar Gunnarsdóttur. Verkin lýsa náttúrufari draums og jarðar; í ljóðunum er brugðið upp myndum af nokkrum stöðum í Reykjavík, m.a. Laugarnesinu. Verk Sigurjóns veita hinum efnisformunum aukið þyngdarafl, á meðan loftkennt eðli ljóðsins undirstrikar draumsæi viðarmyndanna og textílverkanna.

Fréttatilkynning
Listaverkaskrá
Sýningarskrá
4. - 19. febrúar 2006


Úr fórum safnsins
Hermes
Hermes, LSÓ 168
Listaverk eftir Sigurjón Ólafsson

Fjölrituð sýningarskrá með ljósmyndum
16. september - 27. nóvember 2005

Hraunblóm
Lavaens blå blomst


Carl-Henning Pedersen, Else Alfelt, Svavar Guðna­son og Sigur­jón Ólafs­son


Sýningarferli:
• Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, 17.09.05−27.11.05
Listasafnið á Akureyri14.01.06−26.02.06
Carl-Henning Pedersen og Else Alfelts Museum, Herning 07.04.06−14.05.06
Norðurbryggja, Kaupmannahöfn 02.11.06−15.01.07

Else Alfelt
Lavaens blaa Blomst
Sýning á vatnslitamyndum og olíukrítar- og tússverkum dönsku COBRA listamannanna Else Alfelt og Carl-Henning Pedersen sem þau hjónin gerðu er þau dvöldu hér á landi sumarið 1948. Einnig verða sýnd verk Svavars Guðnasonar og Sigurjóns Ólafssonar frá sama tíma.

Í sýningarskrá fjallar Aðalsteinn Ingólfsson um veru hjónanna hér á landi og áhrif komu þeirra á íslenska list og listamenn að loknu stríði. Þá rita Æsa Sigurjónsdóttir og Hanne Lundgren, forstöðukona listasafns þeirra hjóna í Herning í Danmörku, greinar um líf og starf listamannanna.

Fréttatilkynning með myndum

Myndir frá sýningunni


Fyrir skólaheimsóknir
5. febrúar - 4. september 2005


Aðföng, gjafir og lykilverk eftir Sigurjón Ólafsson
Skulptur 259
Skúlptúr LSÓ 259
Safn 23 listaverka eftir Sigurjón Ólafsson sem spanna allt skeið hans sem listamanns. Verkin eru ólík í stíl, gerð og úr mjög mismunandi efnum. Flest þeirra eru ný í eigu safnsins, hafa verið gefin eða seld safninu á undanförnum áratug. Með þeim er stillt upp tveimur verkum sem fengin hafa verið að láni til safnsins.

Fjölritaður bæklingur með texta um hvert listaverk fylgir sýningunni.
10. september - 28. nóvember 2004


Mánasigð
Isle Hessner

farandsýning frá LSÓ




Sýningarferli:
Isle Hessner er fædd í Nanortalik á Grænlandi og hlaut sína fyrstu menntun við Listaskólann í Nuuk, en hefur einnig stundað nám við listaskóla í Reykjavík, Kaupmannahöfn, Helsinki, Nova Scotia og Colorado. Isle er talinn einn helsti brautryðjandi grænlenskrar nýlistar og hafa verk hennar ávallt vakið mikla athygli. Hún hefur tekið þátt í mörgum virtum samsýningum, meðal annars farandsýningunni Den flyvende kajak, sem fór um Grænland, Spán, Noreg, Svíþjóð, Pólland og Danmörku á árunum 1994 - 1997. Verkin sem hún sýnir á Mánasigð eru öll gerð 2004 fyrir þessa sýningu og hlaut hún til þess styrk frá Grænlensku heimastjórninni.
   Sýningarskrá á fjórum tungumálum (íslensku, dönsku, grænlensku og ensku) hefur verið gefin út með greinum, m.a. eftir einn virtasta sérfræðing um grænlenska list, Bodil Kaalund.
   Grænlenski dansinn er órofa tengdur grænlenskri menningu og var honum gerð skil á sýningunni. Grænlenska sviðslistakonan Jessie Kleemann kom fram í safninu 25. og 26. september og tvinnaði saman dans og hljóð við skúlptúra sýningarinnar.

UTAN SAFNS
10. - 15. maí 2004

Master Portrait

Cork Street 28, London
Móðir mín
Móðir mín, LSÓ 007
Árlega velur félag breska myndhöggvara The Society of Portrait Sculptors Meistaraverk meðal listaverka liðinna portrett listamanna.

Árið 2004 varð andlitsmynd Sigurjóns Móðir mín fyrir valinu og var hún á sýningu félagsins FACE 2004 í sýningarsalnum Cork Street 28 í London. Netsíða

Gefin var út 96 bls. sýningarskrá með grein um Sigurjón eftir Aðalstein Ingólfsson. Sérprent af greininni er fáanlegt í LSÓ.

Ríkislistasöfnin í Reykjavík, Kaupmannahöfn og Stokkhólmi eiga bronseintak af verkinu. Bronsmynd í eigu LSÓ verður á sýningunni.
25. október 2003 - 5. september 2004

Listaverk Sigurjóns Ólafssonar í alfaraleið
Íslandsmerki, LSÓ 048
Íslandsmerki, LSÓ 048
Ljósmyndir af verkum Sigurjóns í opinberu rými ásamt höggmyndum sem tengjast þeim. Í tengslum við Málþingið í Norræna Húsinu 18. október 2003.
18. október 2003
Málþing
Sigurjón Ólafsson og list á almannafæri
Búrfellsvirkjun
Búrfellsvirkjun í Þjórsárdal
Málþing í Norræna húsinu í tilefni þess að þann 21. október voru liðin 15 ár frá því að Listasafn Sigurjóns á Laugarnesi var opnað almenningi.

Dagskrá á ensku
31. ágúst - 28. september 2003


Meistarar formsins
Úr höggmyndasögu 20. aldar

Í samvinnu við Listasafnið á Akureyri

Degas: Dansmær að skoða á sér ilina
Perlur eftir helstu módernista í evrópskri höggmyndasögu, fengnar að láni úr þýska ríkislistasafninu í Berlín. Þar á meðal eru verk eftir Degas, Archipenko, Maillol, Moore, Marino Marini, Manolo, Laurens, Renoir, Barlach, Kollwitz, Hartung og samtímalistamennina Sol LeWitt, Schwegler, Per Kirkeby og Axel Lischke.

Einnig verk eftir brautryðjendur íslenskrar höggmyndalistar, þá Einar Jónsson, Ásmund Sveinsson, Sigurjón Ólafsson og Gerði Helgadóttur.

Listasafnið á Akureyri gaf út sýningarskrá á íslensku og ensku.

Kennarar eru hvattir til að hafa samband við safnstjóra (sími 553 2906) vegna skólaheimsókna.

• Kennsluefni fyrir framhaldsskólanemendur
• Kennsluefni fyrir grunnskólanemendur
1. júní - 21. ágúst 2003

Andlitsmyndir og afstraksjónir


Framhald
Svava Ág&uacutestsdóttir
Svava Ágústsdóttir
Sýning á 13 völdum portrettum og jafnmörgum afstraktverkum eftir Sigurjón Ólafsson.

Sigurjón er talinn meðal helstu portrettlistamanna samtímans og þótt hann hefði einnig verið meðal frumkvöðla afstrakt höggmyndalistar í Danmörku var mannslíkaminn honum ætíð hugleikinn.

Sýningarskrá á pdf formi
5. apríl - 4. maí 2003


STERLING STUFF

Höggmyndir úr silfri frá Englandi
Höggmyndir Sigurjóns Ólafssonar

Smáskúlptúrar eftir 51 listamann, þar af tvo íslenska, þau Pétur Bjarnason og Jóhönnu Þórðardóttur.
    Sýningin kom frá bresku bronssteypunni Pangolin Edition og var í galleríi þeirra, Gallery Pangolin síðla árs 2002.
    Hér bættist við sýninguna ný silfurafsteypa af verki Sigurjóns: Hávaðatröllið (LSÓ 197) sem steypt var hjá Pangolin Editions. aa    Að lokinni sýningunni í Listasafni Sigurjóns verður hún sett upp í Konunglega Listaháskólanum, The Royal Academy of Fine Arts, í London.

Pangolin Edition gaf út sýningarskrá með sýningunni.

Ávarp Birgittu spur við opnun sýningarinnar
5. okt. 2002 - 30. mars 2003

Andlitsmyndir og afstraksjónir
Sýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar
Ragnar Jónsson í Smára
Ragnar Jónsson í Smára
Sjá ofar
6. júlí - 22. september 2002


Hin hreinu form
Höggmyndir Sigurjóns Ólafssonar
Ferskeytt mynd, LSÓ 224
Ferskeytt mynd, LSÓ 224
Sumarsýning Listasafns Sigurjóns Ólafssonar nefnist Hin hreinu form og þar verða til sýnis höggmyndir eftir Sigurjón Ólafsson frá 45 ára tímabili. Elsta verkið, Fótboltamenn frá 1936 (LSÓ 247), er dæmi um hvernig listamaðurinn vann hin stóru, plastísku form af ótrúlegri nákvæmni og leikni, enda vakti verkið gífurlega athygli á sínum tíma. Þetta lykilverk var gefið safninu fyrir nokkru, en það hafði verið í einkaeigu í Danmörku í 55 ár og kom í leitirnar sumarið 1991, þegar haldin var farandsýning í Danmörku á verkum Sigurjóns.

Flest önnur verk á sýningunni eru abstrakt og unnin í stein, tré og málm. Þau bera höfuðeinkenni Sigurjóns; frjótt ímyndunarafl, djúpan skilning á efniviðnum og snilldarlegar aðferðir listamannsins við að yfirfæra hugmyndir í efni. Í verkunum er áhrifamikið samspil forms og efnis, milli hins stórbrotna og hins smágerða, en heildaráhrifin eru borin uppi af stórum, hreinum formum.
  23. maí - 30. júní 2002

Konan
- Maddama, kerling, fröken, frú...



Framlag LSÓ til Listahátíðar
í Reykjavík 2002
Kona, LSÓ 224
Kona, LSÓ 1066
Á starfsferli sínum vann Sigurjón Ólafsson mörg verk sem lýsa konunni. Eru þau fjölbreytt og eiga sér marga túlkunarfleti og hefur sérhver kynslóð tækifæri til að skoða þau og upplifa út frá eigin forsendum.

Á þessari sýningu fá safngestir að sjá og heyra hvernig ellefu íslensk ljóðskáld, allt konur, túlka jafnmargar konumyndir Sigurjóns sem eru á sýningunni. Hver skáldkvennanna hefur samið ljóð eða prósatexta um sitt verk og gefst gestum kostur á að hlýða á hljóðupptöku af lestri þeirra um leið og sýningin er skoðuð. Gefinn var út geisladiskur með ljóðalestrinum ásamt prentuðum bæklingi með ljóðunum og ljósmyndum af listaverkunum.

Skáldkonurnar eru:
Elísabet Jökulsdóttir • Fríða Á. Sigurðardóttir • Guðrún Eva Mínervudóttir • Ingibjörg Haraldsdóttir • Kristín Ómarsdóttir • Linda Vilhjálmsdóttir • Margrét Lóa Jónsdóttir • Sigurbjörg Þrastardóttir • Vigdís Grímsdóttir • Vilborg Dagbjartsdóttir • Þórunn Valdimarsdóttir
UTAN SAFNS
3. mars - 7. apríl 2002

Sigurjón og Ólafsson
− yfirlitssýning

í Listasafninu á Akureyri
Fyrsta yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar norðan heiða.
Aðalsteinn Ingólfsson ritaði grein á vef safnsins um sýninguna.
10. nóvember 2001 - 5. maí 2002

Kynlegir kvistir

Sigurjón Ólafsson



Safnið er lokað í desember og janúar
Draugur, LSÓ 074
Draugur, LSÓ 1066
Sýning vetrarins er tvískipt. Annars vegar eru tímamótaverk Sigurjóns Ólafssonar frá ýmsum skeiðum á listferli hans og hins vegar frjáls verk, þar sem listamaðurinn gaf ímyndunaraflinu lausan tauminn. Lífsgleði og kímni eru alls ráðandi í þeim leik að efninu sem hann náði valdi á í allmörgum verkum sínum frá árunum 1930-40.

Nánar
1. september - 28. október 2001


Speglanir
Helgi Gíslason myndhöggvari

 
Helgi Gíslason sýndi ný verk sem hann hafði sjálfur unnið í brons. Tengdust þau fyrri verkum hans þar sem viðfangsefnið er maðurinn og mannslíkaminn.

Sýningarskrá fylgir sýningunni
1. júní - 31. ágúst 2001


Hefð og Nýsköpun
Finngálkn, LSÓ 015
Finngálkn, LSÓ 015
Sumarið 2001 eru sýnd valin verk frá þrjátíu ára tímabili (1930-1960) í list Sigurjóns. Frá árinu 1928-1945 starfaði hann í Danmörku og varð meðal brautryðjenda abstraktlistar þar í landi. Af áræðni gekk hann þvert á hefðbundnar leiðir, en vann jafnhliða eftirminnilegar andlitsmyndir og styttur í raunsæjum stíl. Á árunum 1941 - 45 hjó hann tvær stórar styttur í granít fyrir Ráðhústorgið í Vejle á Jótlandi og marka þær uphafið að merku steinhöggstímabili sem stóð fram til loka sjötta áratugarins. Grásteinsmyndir Sigurjóns eru einstakar, þar gætir áhrifa frá ævafornum steinskúlptúrum, en einnig frá íslenskri náttúru og sagnahefð.
5. nóvember 2000 - 4. janúar 2001


Hærra til þín
Passionstoner


Sýningarferli:
  • Listasafn Sigurjóns og Ásmundar­safn í Reykjavík (05.11.00−04.01.01)
  • Listasavn Føroya, Tórshavn (20.01.01−18.02.01)
  • Sophienholm, Lyngby, Sjálandi (08.03.01−22.04.01)
  • Museet på Sønderborg Slot (04.05.01−12.08.01)
  • Museet for Religiøs Kunst med Bodil Kaalund Samlingerne í Lemvig á Jótlandi (25.08.01−12.10.01)

Trúarleg minni í norrænni myndlist
Listaverk eftir Ásmund Sveinsson, Sigurjón Ólafsson, Samuel Joensen-Mikines, Hannah Ryggen, Jakob Weidemann, Olivia Holm-Møller, J.A. Jerichau, Robert Jakobsen og Svend Wiig-Hansen.

Í samvinnu við Listasafn Reykjavíkur - Ásmundarsafn og hér á landi var sýningarmununum deilt á þessi söfn. Sýningin var framlag safnanna til Kristnihátíðar á Íslandi og Reykjavíkur Menningarborgar Evróðpu árið 2000 og var valin á dagskrá þessara aðila.

Litprentuð Sýningarskrá, 80 síður, á íslensku og dönsku með greinum um sérhvern listamannanna. Í aðfaraorðum sem Bodil Kaalund, Birgitta Spur og Eiríkur Þorláksson rita sameiginlega segir:
„En trúarkenndin var enn sem fyrr til staðar, og á nýjum tímum voru hinar kristnu myndir enn nothæfar, þrátt fyrir nýjar hugsjónir og pólitísk viðhorf. Margir merkir listamenn unnu enn fyrir kirkjuna: Bror Hjort, Niels Larsen-Stevns, Henrik Sørensen, Nína Tryggvadóttir... Aðrir fóru hljótt með það, og það eru fulltrúar þeirra, sem sýningarnefndin hefur kostið að draga fram, hið trúarlega listaverk, sem varð til í leynum. Það var ekki pantað en varð til út frá innri nauðsyn og segir það sína sögu um einlæga túlkun listamannsins á hinum miklu afgerandi spurningum lífsins.“
1. júní - 29. október 2000

Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson
Séra Friðrik Friðriksson
Séra Friðrik Friðriksson
Að mestu leyti sama sýning og "Spor í sandinn", en einnig nokkur verk og veggspjaldasýning í um sögu Laugarness í tengslum við námskeið fyrir 11-14 ára börn sem safnið stóð fyrir og nefndist:

Sagan í landslaginu - náttúra, búseta, minjar og list.
1. júní 1999 - maí 2000


Spor í sandinn
Spor í sandinn
Spor í sandinn
Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar.
UTAN SAFNS
17. júní - 11. júlí 1999


Sýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar

Listsetrið Kirkjuhvoll Akranesi
Fótboltamenn
Fótboltamenn
Fjórtán skúlptúrar Sigurjóns sem Birgitta Spur valdi fyrir Listsetrið Kirkjuhvol á Akranesi og sýna fjölbreytni Sigurjóns sem listamanns.
21. okt. 1998 - vor. 1999


Sigurjón Ólafsson ævi og list
Yfirlitssýning


Hluti sýningarinnar var í Hafnarborg

Yfirlitssýning í LSÓ og Hafnarborg í tilefni útkomu fyrra bindis af ritinu Sigurjón Ólafsson ævi og list.

Sýningin í Hafnarborg opnaði 31. október og lauk á Þorláksmessu sama ár.
8. - 30. ágúst 1998
Vinafundur
í efri sal safnsins
Málverk eftir vini Sigurjóns þau Guðmundu Andrésdóttur, Kristján Davíðsson, Þorvald Skúlason og Jóhannes Jóhannesson. Teflt saman við höggmyndir Sigurjóns á Sumarsýningu 1998.
11. júlí - 2. ágúst 1998
Nína Tryggvadóttir
í efri sal safnsins
Tuttugu og eitt afstrakt málverk frá árunum 1960-1967 í eigu Unu Dóru Copley, dóttur listakonunnar, teflt saman við skúlptúra Sigurjóns á "Sumarsýningu" 1998.
11. júlí - 31. ágúst 1998
Sumarsýning
Úrval verka Sigurjóns Ólafssonar
Samhliða málverkasýningunum Nína Tryggvadóttir og síðar Vinafundur.
25. apríl - 5. júlí 1998

Úr málmi / Metalworks

Gestasýning:
Örn Þorsteinsson

Örn Þorsteinsson:
Á hjólum, 1996
Fimmtíu skúlptúrar og lágmyndir úr silfri, tini, brons, ál, járn og einnig vaxi.

Flest verkanna eru smámyndir, en einnig voru sýndar nokkrir stórir skúlptúrar úr ryðjárni. Listamaðurinn gaf út 48 síðna sýningarskrá, með stuðningi LSÓ, þar sem Aðalsteinn Ingólfsson ritar greinina "Fótspor hugsana".
september 1997 - apríl 1998

Svífandi form
Fljúgandi diskar, LSÓ 095
Fljúgandi diskar, LSÓ 095
Tuttugu og fimm listaverk eftir Sigurjón Ólafsson frá 1937 - 1981.

Leitast er við að tefla saman myndum þar sem léttleikinn ríkir og hin þrívíðu form virðast ögra sjálfu þyngdarlögmálinu.
13. júní 1997 - 1. september 1997

Gróandi
Gróandi, LSÓ 09
Gróandi, LSÓ 096
Verk eftir Sigurjón sem bæði í formi og nafngiftum tengjast náttúru og gróðri.
7. septemer 1996 - 13. júní 1997

Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson
Í lífsháska, LSÓ 155
Í lífsháska, LSÓ 155
Höggmyndir Sigurjóns sérstaklega valdar með tilliti til skólaheimsókna, þannig að heiti verkanna fælu í sér vísbendingar um hvernig mætti túlka þau.

Var öllum skólum á Stór-Reykjavíkursvæðinu sent boð að senda skólahópa á sýninguna.
UTAN SAFNS
29. september - 5. október 1996

Veggspjaldasýning
í Horsens, Jótlandi
Verslun og iðnaðure LSÓ 1063
Verslun og iðnaður LSÓ 1063
Veggspjaldasýning, unnin fyrir 'Íslandsviku' í Horsens á Jótlandi, sem lýsir sögu steinmynda Sigurjóns á Ráðhúsinu í Vejle, en það eru liðlega fjörutíu ár síðan þær voru settar upp eftir miklar deilur, aðallega vegna andstöðu þáverandi meirihluta borgarstjórnar, sem þóttu myndirnar hneykslanlegar.

Eftir sýninguna í Horsens var sýningin sett upp í anddyri Ráðhússins í Vejle og stóð þar í fjórar vikur. Veggspjöldin urðu síðar hluti af sýningunni 'Valin verk eftir Sigurjón Ólafsson' í LSÓ.
9. júní 1996 - 1. september 1996

Vættatal

 
Samsýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar og Páls á Húsafelli.

Páll fékk frjálsar hendur um val á verkum Sigurjóns og hann vann mörg sinna verka gagngert fyrir þessa sýningu.

Litprentuð 24 síðna sýningarskrá með greinum eftir Aðalstein Ingólfsson og Thor Vilhjálmsson.
27. janúar 1996 - 19. maí 1996


Valdar portrettmyndir
Stefán Stefánsson skólameistari
Stefán Stefánsson skólameistari, LSÓ 216
Að nokkru leyti framhald af Þessir kollóttu steinar, en nú voru málverk fengin að láni frá Listasafni Íslands eftir Ásgrím Jónsson, Jóhannes Kjarval, Jón Stefánsson og Kristján Davíðsson af þekktum mönnum sem Sigurjón hafði mótað. Þannig mátti í efri sal safnsins sjá mismunandi túlkun myndhöggvara og málara af sömu fyrirmyndum.

Listi með verkum á sýningunni
26. ágúst - 17. september 1995


Textílverk


Í efri sal safnsins

 
Textílverk norsku listakonunnar Grete Borgersrud.

Sýningarskrá
24. júní 1995 - 7. ágúst 1995


Einu sinni var...


Í efri sal safnsins
Klippimyndir eftir dönsku listakonuna Gunhild Skovmand.

24 síðna sýningarskrá á íslensku og dönsku með aðfaraorðum eftir Birgittu Spur, "Þönkum" eftir listakonuna sjálfa og "um klippimyndir" eftir Hans Laumann þar sem meðal annars er fjallað um "gækkebreve".

pdf útgáfa af sýningarskránni 7.5 Mb
22. apríl 1995 - 21. janúar 1996


Þessir kollóttu steinar
Sigurður Nordal,<br>LSÓ 1086
Sigurður Nordal,
LSÓ 1086
Sýning á andlitsmyndum Sigurjóns, meðal annars til að vekja athygli á samnefndu myndbandi sem safnið hafði látið gera og mátti skoða á sýningunni. Það var tvívegis sýnt í Sjónvarpinu og árið 1994 hlaut það Silver Screen Award verðlaunin í flokki fræðslumynda á Alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Chicago í Bandaríkjunum: US International Film and Video Festival.
25. febrúar - 20. mars 1995

Frá prímitívisma til póstmódernisma

Hluti sýningarinnar var í Hafnarborg, Hafnarfirði
Höggmyndasýning í samvinnu við Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, sem var liður í norrænu menningarhátíðinni SÓLSTÖFUM.

Sýnd voru liðlega 40 verk eftir fimm norræna myndhöggvara, þá Bror Hjorth, Sigurjón Ólafsson, Mauno Hartman, Bjørn Nørgaard og Gunnar Torvund. Sýningin er með stærstu höggmyndasýningum sem settar hafa verið upp hérlendis og voru salarkynni beggja safna notuð.

Gefin var út 96 síðna samnefnd sýningarskrá.
3. júní 1994 - 15. janúar 1995

Íslandsmerki og súlur Sigurjóns
Ó&ethinn situr að tafli
Íslandsmerki eða
„Óðinn situr að tafli“
LSÓ 1278
Sýning unnin um Íslandsmerki á Hagatorgi sem Sigurjóni var falið að gera í tilefni af 25 ára afmæli lýðveldisins.

Á sýningunni voru vinnuskissur að því verki og margar súlumyndir Sigurjóns.

Samnefnd 72 síðna sýningarskrá með rannsóknarritgerð eftir Auði Ólafsdóttur.
2. október 1993 - 1. maí 1994
HUGMYND - HÖGGMYND,
úr vinnustofu Sigurjóns Ólafssonar
Börn sð leik
Börn sð leik, LSÓ 1278
Tilgangur þessarar sýningar var að lýsa ferli listaverks frá hugmynd til fullbúinnar myndar, og í því sambandi voru til sýnis frumdrög, skissur og ýmis verkfæri og tæki úr vinnustofu Sigurjóns. Sýningin var sérstaklega miðuð við skólanemendur þótt hún ætti erindi við alla aldurshópa.
29. maí - 31. ágúst 1993
Myndir í fjalli,
um tilurð listaverka Sigurjóns Ólafssonar við Búrfellsvirkjun 1966 − 69
Sýning á vinnuskissum og verkfærum ásamt nokkrum verkum Sigurjóns sem tengjast Búrfellsmyndunum, ( Búrfellsvirkjun og Hávaðatröllið) eða mótívum sem sjá má í þeim.

Einnig var sýnt myndband Ásgeirs Long um tilurð verkanna, sem hann gerði fyrir Landsvirkjun.
31. maí - 1. október 1992


Æskuverk Sigurjóns
Sýning í tengslum við Fjölskyldudagar á Laugarnesi (31.05.92-16.06.92). Í efri sal safnsins voru sýndar teikningar sem Sigurjón gerði á unga aldri, úr gjöf hjónanna Gísla Ólafssonar (bróður Sigurjóns) og Kristínar Einarsdóttur, en í neðri sal nokkur öndvegisverk hans sem ekki voru viðkvæm fyrir snertingu barna.

Að lokinni sýningunni í safninu voru Æskumyndir Sigurjóns sýndar í samkomuhúsinu Stað á Eyrarbakka vikuna 17. - 25. október.
7. nóvember 1992 - vor 1993
Vetrarsýning
Höggmyndir úr fórum safnsins.
21. október 1991 - 3. maí 1992

Sigurjón Ólafsson - Danmark Island

Sýningarferli:
  • Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, 21.10.92 − 03.05.93
  • Kastrupgaardsamlingen København 13.04.91 − 09.06.91
  • Vejle Kunstmuseum 15.06.91 − 24.07.91
  • Silkeborg Kunstmuseum 01.08.91 − 01.09.91
Surtur
Surtur, LSÓ 042
Fyrsta yfirlistssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar í Danmörku.

Sýningunni fylgdi 108 síðna sýningarskrá á dönsku og íslensku m.a. með ávarpi Svavars Gestssonar menntamálaráðherra, grein Birgittu Spur, viðtölum við samverkamenn Sigurjóns í Danmörku og ljósmyndum og ummfjöllun um verkin á sýningunni.
3. júní 1990 - 30. september 1991
Andlitmyndir Sigurjóns

 
Fyrsta sérstaka sýning á andlitsmyndum Sigurjóns. Á sýningunni voru 27 portrett og ljósmyndir af 19 öðrum.

Sýningarskrá
21. október 1989 - 6. maí 1990
Málmverk og aðföng

 
Málmverk sem Sigurjón vann á Reykjalundi á árunum 1960 - 62 og gjafir sem safninu höfðu borist undanfarin ár. Samnefnd sýningarskrá, meðal annars með grein eftir Aðalstein Ingólfsson um það sem hann nefnir „járnöldina“ í list Sigurjóns.
1. ágúst - 1. október 1989
Hundadagar '89
Gestasýning í efri sal safnsins:
Andlitsmyndir Kristjáns Davíðssonar.
Í samvinnu við Tónlistarfélag Kristskirkju og Alþýðuleikhúsið.
21. október 1988 - lok júlí 1989
Yfirlitssýning á verkum Sigurjóns Ólafssonar
Í tilefni af opnun safnsins.